Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 25

Einkenni lærisveina Krists

Einkenni lærisveina Krists

(Jóhannes 13:34, 35)

1. Til eru lög sem við lútum sátt,

lifum við þá á kristinn hátt.

Konunglegt boð komið Kristi frá:

Kærleik hans ætíð þekkjast á.

Lífið sitt fullkomið færði hann,

fórn sem best sýnir kærleikann.

Ef okkar lausnara líkjumst náið

lærisveinar hans reynumst við.

2. Aldrei úr gildi sönn elska fer,

aðstoðar þann sem veikur er.

Elskan er skuld greidd í allra hag,

áköf þjónum þeim sérhvern dag.

Aðeins á foldu hér finnum þá

fágætu ást sem vinir tjá.

Bönd þessi eru svo áreiðanleg,

ætíð kærleikans fetum veg.