Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Söngur 4

Að eignast gott mannorð

Að eignast gott mannorð

(Prédikarinn 7:1)

1. Lífinu lifum án lasta sérhvern dag.

Það mannorð metur Guð okkur mest í hag.

Við ræktum réttlætið, Guðs rétta sjónarmið.

Með góðum gjöfum hann gleðjum við.

2. Fíknin í frama, fálm eftir auð og frægð,

hylli heims hljóta, hagsæld og mikla gnægð,

hégómi er það allt, auður og glys er valt,

Guðs hylli glötum, gerist þá kalt.

3. Um alla eilífð, nöfn okkar séu skráð,

í bók hans bundin og burt þau aldrei máð.

Guðs sannleik verjum við, hann veitir okkur lið,

því mest við metum gott mannorðið.