Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Fyrir unga lesendur

Móse fær sérstakt verkefni

Móse fær sérstakt verkefni

Leiðbeiningar: Finndu þér hljóðlátan stað áður en þú leysir þetta verkefni. Þegar þú lest ritningarstaðina skaltu ímynda þér að þú sért á staðnum. Sjáðu atburðina fyrir þér. Hlustaðu á raddirnar. Hugleiddu hvernig sögupersónunum var innanbrjósts. Leyfðu frásögunni að lifna við.

Aðalpersónur: Jehóva Guð og Móse.

Samantekt: Jehóva segir Móse að leiða Ísraelsmenn út úr Egyptalandi.

1 SKOÐAÐU SÖGUSVIÐIÐ. – LESTU 2. MÓSEBÓK 3:1-14; 4:1-17.

Lýstu hvernig þú heldur að logandi runninn hafi litið út.

․․․․․

Hver heldurðu að viðbrögð Móse séu – bæði svipbrigði hans og raddblær – þegar hann heyrir orð Jehóva sem finna má í 2. Mósebók 3:4?

․․․․․

Hvaða tilfinningar skynjar þú í rödd Móse þegar hann rökræðir við Jehóva eins og ritað er í 2. Mósebók 3:11, 13 og 4:1, 10?

․․․․․

2 KAFAÐU DÝPRA.

Notastu við þau hjálpargögn sem þú hefur við höndina til þess að skilja betur orðasambandið: „Ég er sá sem ég er.“ (2. Mósebók 3:14) Af hverju svaraði Jehóva Móse á þennan hátt þegar Móse spurði um nafn hans? *

․․․․․

Af hverju heldurðu að Móse hafi verið tregur til að koma fram fyrir faraó? (Vísbending: Lestu 4. Mósebók 12:3.)

․․․․․

Af hverju ætli Móse hafi verið hikandi að hitta samlanda sína, Ísraelsmenn?

․․․․․

3 NOTAÐU ÞAÐ SEM ÞÚ LÆRÐIR. SKRIFAÐU HJÁ ÞÉR HVAÐ ÞÚ HEFUR LÆRT UM . . .

Þá tilhneigingu manna til að hafa lítið sjálfstraust.

․․․․․

Traust Jehóva til þín og getu þinnar.

․․․․․

ANNAÐ SEM ÞÚ GÆTIR VELT FYRIR ÞÉR.

Á hvaða sviðum lífsins skortir þig sjálfstraust?

․․․․․

Á hvaða hátt gæti Jehóva Guð nýtt krafta þína og þjónustu þrátt fyrir takmarkanir þínar?

․․․․․

4 HVAÐ Í ÞESSARI FRÁSÖGU HAFÐI MEST ÁHRIF Á ÞIG OG HVERS VEGNA?

․․․․․

Hægt er að finna meira biblíutengt efni á www.jw.org.

Ef þú vilt hlaða niður og/eða prenta út þessa grein geturðu nálgast hana á www.jw.org.

[Neðanmáls]

^ gr. 14 Vottar Jehóva gefa út fjölda bóka og bæklinga sem geta hjálpað þér að kafa dýpra þegar þú rannsakar Biblíuna. Hafðu samband við Votta Jehóva í þínu bæjarfélagi eða skrifaðu til útgefenda þessa blaðs til að fá frekari upplýsingar.