Hvers vegna ætti ég að fylgja siðferðisreglum Biblíunnar?

Hvers vegna ætti ég að fylgja siðferðisreglum Biblíunnar?

KAFLI 34

Hvers vegna ætti ég að fylgja siðferðisreglum Biblíunnar?

Þú situr í matsal skólans og borðar hádegismat með tveim skólasystrum þínum þegar nýi strákurinn gengur inn í salinn.

„Veistu, ég held að Breki sé hrifinn af þér,“ segir önnur stelpan við þig. „Ég sé bara hvernig hann horfir á þig. Hann getur ekki tekið augun af þér!“

„Og veistu hvað?“ hvíslar hin stelpan og hallar sér í áttina til þín. „Hann er á lausu!“

Þig var reyndar búið að gruna þetta. Um daginn bauð Breki þér nefnilega í partí sem átti að vera heima hjá honum. Þú afþakkaðir auðvitað en hugsaðir samt með þér hvað hefði gerst ef þú hefðir sagt já.

Fyrri stelpan truflar þig í þessum hugsunum.

„Það er nú bara verst að ég er ekki á lausu,“ segir hún. „Annars væri ég sko meira en til í að byrja með Breka.“

Síðan horfir hún spyrjandi á þig. Þú veist hvað kemur næst.

„En heyrðu, af hverju átt þú ekki kærasta?“ spyr hún.

Þú óttaðist þessa spurningu. Þú værir alveg til í að eiga kærasta, en þér hefur verið sagt að það sé best að bíða þangað til að þú sért tilbúin til að giftast. Bara ef það væri ekki út af . . .

„Það er út af trúnni þinni, ekki satt?“ segir hin stelpan.

Las hún hugsanir mínar? spyrðu sjálfa þig.

„Hjá þér er það alltaf Biblían, Biblían, Biblían,“ segir hún í hæðnistón. „Af hverju máttu ekki skemmta þér aðeins?“

HEFUR þér einhvern tíma verið strítt vegna þess að þú reynir að fylgja siðferðisreglum Biblíunnar? Þá hefurðu kannski velt fyrir þér hvort þú sért að missa af einhverju? Stelpu, sem heitir Deborah, fannst það. „Mér fannst siðferðisreglur Biblíunnar halda aftur af mér,“ segir hún. „Mig langaði til að hafa sama frelsi og skólafélagarnir.“

Lærðu af mistökum annarra

Það er ekki alltaf best að læra af eigin mistökum. Það er hins vegar bæði viturlegt og biblíulegt að læra af mistökum annarra og það er einmitt það sem sálmaritarinn Asaf gerði. Um tíma fannst honum að lífsreglur Guðs væru of strangar. En þegar hann athugaði nánar hvernig þeim vegnaði, sem höfnuðu vegum Guðs, sá hann hlutina í réttu ljósi. Hann sagði seinna að þeir væru á ,hálli jörð‘. — Sálmur 73:18.

Með það í huga skaltu skoða eftirfarandi viðtöl við ungt fólk sem hafnaði siðferðisreglum Biblíunnar um tíma og stundaði kynlíf fyrir hjónaband.

Hvað hafði áhrif á hugsunarhátt þinn og hegðun?

Deborah: „Í skólanum áttu allir kærasta og kærustur og virtust svo hamingjusamir. Þegar ég var með þessum pörum og sá þau kyssast og faðmast varð ég öfundsjúk og einmana. Ég leyfði mér tímunum saman að dreyma um ákveðinn strák sem ég var hrifin af. Það gerði það að verkum að ég þráði enn heitar að vera með honum.“

Mike: „Ég las blöð og horfði á þætti sem vegsömuðu kynlíf. Forvitnin jókst þegar ég talaði við vini mína um kynlíf. Þegar ég var síðan með stelpu í einrúmi hélt ég að við gætum gengið frekar langt án þess að hafa kynmök. Ég hélt að ég gæti stoppað hvenær sem er.“

Andrew: „Ég lagði í vana minn að horfa á klám á Netinu. Ég byrjaði að drekka mjög mikið og fór í partí með ungu fólki sem bar ekki mikla virðingu fyrir siðferðisreglum Biblíunnar.“

Tracy: „Ég vissi að það var rangt að stunda kynlíf fyrir hjónaband en ég hataði það samt ekki. Ég ætlaði mér aldrei að stunda kynlíf áður en ég gifti mig en tilfinningarnar náðu yfirhöndinni. Um tíma var samviskan alveg dofin og ég fann ekki til neinnar sektarkenndar.“

Veitti þessi lífsstíll þér hamingju?

Deborah: „Til að byrja með var ég í sæluvímu yfir frelsinu og fannst ég loksins eiga samleið með jafnöldrum mínum. En sú tilfinning entist ekki lengi. Mér fór að finnast ég vera óhrein, innantóm og rænd sakleysinu. Ég sá mjög mikið eftir því að hafa kastað meydómnum á glæ.“

Andrew: „Það varð alltaf auðveldara og auðveldara að láta undan röngum löngunum. En samtímis fann ég til mikillar sektarkenndar og var óánægður með sjálfan mig.“

Tracy: „Siðleysi eyðilagði æsku mína. Ég hélt að ég og kærasti minn myndum hafa það svo skemmtilegt saman. En það var ekki þannig. Við ollum hvort öðru óhamingju, kvöl og sárindum. Ég grét mig í svefn kvöld eftir kvöld og óskaði þess að ég hefði fylgt leiðbeiningum Jehóva.“

Mike: „Mér fór að líða eins og hluti af sjálfum mér hefði dáið. Ég reyndi að gera lítið úr þeim áhrifum sem hegðun mín hafði á aðra, en ég gat það ekki. Mér fannst sárt að uppgötva að með því að fullnægja eigin löngunum var ég að særa aðra.“

Hvaða ráð myndirðu gefa þeim sem velta fyrir sér hvort siðferðisreglur Biblíunnar séu of strangar?

Tracy: „Fylgdu lífsreglum Jehóva og hafðu félagsskap við fólk sem gerir það líka. Þá verðurðu hamingjusamari.“

Deborah: „Þetta snýst ekki bara um þig og hvað þig langar. Hegðun þín hefur áhrif á aðra. Og ef þú sniðgengur ráðleggingar Guðs skaðarðu sjálfan þig.“

Andrew: „Þegar maður er óreyndur heldur maður að lífsstíll jafnaldranna sé spennandi. Viðhorf þeirra eiga eftir að hafa áhrif á þig. Veldu því vinina vandlega. Treystu Jehóva og þá muntu hlífa þér við miklum sársauka og eftirsjá.“

Mike: „Eitt það dýrmætasta, sem Jehóva hefur gefið þér, er sjálfsvirðing þín og sakleysi. Þú gerir lítið úr þér ef þú kastar þessum gjöfum á glæ bara vegna þess að þú getur ekki haft stjórn á þér. Talaðu við foreldra þína og annað þroskað fólk um vandamál þín. Ef þú gerir mistök skaltu segja strax frá því og leiðrétta þig. Ef þú hlýðir Jehóva færðu sannan hugarfrið.“

Siðferðisreglur Biblíunnar — spennitreyja eða öryggisbelti?

Jehóva er ,hinn sæli Guð‘ og hann vill líka að þú njótir hamingju. (1. Tímóteusarbréf 1:11, Biblían 1912; Prédikarinn 11:9) Siðferðiskröfur Biblíunnar eru þér til gagns. Þér gæti auðvitað fundist þær vera eins og spennitreyja sem heftir frelsi þitt. En í rauninni eru siðferðisreglur Biblíunnar meira eins og öryggisbelti sem verndar þig gegn skaða.

Þú getur treyst Biblíunni. Ef þú ákveður að fylgja meginreglum hennar gleðurðu ekki aðeins Jehóva heldur nýtur þú líka góðs af. — Jesaja 48:17.

Í NÆSTA KAFLA

Þú getur verið vinur Guðs. Finndu út hvernig.

LYKILRITNINGARSTAÐUR

„Ég er Drottinn, Guð þinn, sem kenni þér það sem gagnlegt er.“ — Jesaja 48:17.

RÁÐ

Hugleiddu hvernig þú myndir útskýra fyrir yngra systkini af hverju það er viturlegt að fylgja siðferðiskröfum Biblíunnar. Góð leið til að styrkja trúarsannfæringu þína er að tala við aðra um trú þína.

VISSIR ÞÚ . . .?

Þú getur spillt sambandi þínu við Jehóva á augabragði en það getur tekið mörg ár að byggja það upp aftur.

HVAÐ ÆTLA ÉG AÐ GERA?

Til að hjálpa mér að skilja viskuna í leiðbeiningum Biblíunnar ætla ég að ․․․․․

Ef ég fer að öfunda þá sem fylgja mælikvarða heimsins ætla ég að ․․․․․

Það sem mig langar til að spyrja foreldra mína um ․․․․․

HVAÐ FINNST ÞÉR?

● Af hverju er ekki best að læra af eigin mistökum til að átta sig á afleiðingum þess að óhlýðnast lögum Guðs?

● Hvaða lærdóm hefurðu dregið af því sem Deborah, Mike, Andrew, og Tracy sögðu?

● Hvers vegna finnst sumum siðferðisreglur Biblíunnar vera eins og spennitreyja, en af hverju ber slíkt viðhorf vott um skammsýni?

[Innskot á bls. 285]

„Óttinn við að fá aga vegna rangrar breytni er ekki nærri því eins slæmur og sársaukinn sem fylgir því að reyna að fela mistökin.“ — Donna

[Mynd á bls. 288]

Siðferðisreglur Biblíunnar koma ekki í veg fyrir að maður verði hamingjusamur; þær vernda mann.