Fyrra bréfið til Tímóteusar 1:1–20
1 Frá Páli, postula Krists Jesú að skipun Guðs, frelsara okkar, og Krists Jesú, vonar okkar,+
2 til Tímóteusar*+ sem er sannur sonur minn+ í trúnni.
Megi Guð faðirinn og Kristur Jesús Drottinn okkar veita þér einstaka góðvild, miskunn og frið.
3 Áður en ég lagði af stað til Makedóníu hvatti ég þig til að vera um kyrrt í Efesus. Eins geri ég núna því að ég vil að þú skipir vissum mönnum að kenna ekki falskenningar
4 og vera ekki uppteknir af lygasögum+ og ættartölum. Slíkt leiðir ekkert gott af sér+ heldur ýtir aðeins undir tilgangslausar vangaveltur og miðlar engu frá Guði sem styrkir trúna.
5 Markmiðið með þessum leiðbeiningum* er að vekja kærleika+ af hreinu hjarta, góðri samvisku og hræsnislausri trú.+
6 Sumir hafa vikið frá þessu og snúið sér að innantómu þvaðri.+
7 Þeir vilja vera lagakennarar+ en skilja hvorki það sem þeir segja né það sem þeir standa á fastar en fótunum.
8 Nú vitum við að lögin eru góð ef þeim er rétt* beitt
9 og við skiljum að lög eru ekki sett vegna réttlátra heldur fyrir afbrotamenn+ og uppreisnarseggi, óguðlega og syndara, ótrúa* og guðlastara, föðurmorðingja, móðurmorðingja og manndrápara,
10 þá sem lifa kynferðislega siðlausu lífi,* karla sem stunda kynlíf með körlum,* mannræningja, lygara, ljúgvitni* og þá sem brjóta á einhvern annan hátt gegn hinni heilnæmu* kenningu.+
11 Þessi kenning samræmist hinum dýrlega fagnaðarboðskap sem hinn hamingjusami Guð hefur trúað mér fyrir.+
12 Ég er þakklátur fyrir að Kristur Jesús Drottinn okkar, sem veitti mér kraft, treysti mér og fól mér þjónustu+
13 þó að ég hafi áður verið guðlastari, ósvífinn og ofsótt fólk Guðs.+ Mér var miskunnað vegna þess að ég vissi ekki betur og trúði ekki.
14 Einstök góðvild Drottins okkar var mjög ríkuleg og ég fékk trú og naut kærleikans sem býr í Kristi Jesú.
15 Það sem ég segi ykkur nú er áreiðanlegt og það má treysta því fullkomlega: Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa syndara.+ Ég er þeirra verstur.+
16 En mér var miskunnað til að Kristur Jesús gæti notað mig sem skýrasta dæmið um hve þolinmóður hann er. Ég varð dæmi handa þeim sem taka trú á hann og hljóta eilíft líf.+
17 Konungi eilífðarinnar,+ hinum óforgengilega,*+ ósýnilega+ og eina Guði,+ sé heiður og dýrð um alla eilífð. Amen.
18 Ég gef þér þessar leiðbeiningar,* barnið mitt, Tímóteus, í samræmi við þá spádóma sem voru bornir fram um þig. Þeir hjálpa þér að halda áfram að berjast hinni góðu baráttu.+
19 Varðveittu líka trúna og góða samvisku+ en henni hafa sumir varpað frá sér og beðið skipbrot á trú sinni.
20 Þeirra á meðal eru Hýmeneus+ og Alexander sem ég hef gefið Satan á vald+ til að ögunin kenni þeim að hætta að guðlasta.
Neðanmáls
^ Sem þýðir ‚sá sem heiðrar Guð‘.
^ Eða „þessari fyrirskipun“.
^ Orðrétt „löglega“.
^ Eða „þá sem sýna ekki tryggan kærleika“.
^ Eða „gagnlegu“.
^ Eða „þá sem sverja rangan eið“.
^ Sjá orðaskýringar, „kynferðislegt siðleysi“.
^ Orðrétt „karla sem liggja með körlum“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Eða „þessa fyrirskipun“.

