Hoppa beint í efnið

Hvað eru margir vottar Jehóva í heiminum?

Hvað eru margir vottar Jehóva í heiminum?

Skýrsla 2023

Fjöldi votta Jehóva um allan heim

8.816.562

Söfnuðir

118.177

Lönd þar sem vottar Jehóva boða trúna

239

Heildartölur 2023

Skýrsla frá löndum og svæðum 2023

Hvernig teljum við votta Jehóva?

 Við teljum sem votta Jehóva aðeins þá sem boða fagnaðarboðskapinn um Guðsríki í hverjum mánuði. (Matteus 24:14) Það eru bæði þeir sem hafa nú þegar látið skírast sem vottar Jehóva og þeir sem eru enn óskírðir en hæfir til að taka þátt í boðuninni.

Þarf maður að gefa peningaframlög til að teljast vottur?

 Nei. Framlög hafa ekkert um það að segja hvort einstaklingur sé talinn meðal votta eða hvort hann fái ákveðin verkefni í söfnuðinum. (Postulasagan 8:18–20) Flest framlög eru reyndar nafnlaus. Allir vottar gefa af tíma sínum, orku og eigum til alþjóðastarfsins eftir því sem þeir ákveða sjálfir og í samræmi við aðstæður sínar. – 2. Korintubréf 9:7.

Hvernig vitum við hve margir taka virkan þátt í boðuninni?

 Í hverjum mánuði skila vottar inn skýrslu um boðun sína til síns heimasafnaðar. Þeir gefa þessa skýrslu sjálfviljugir.

 Skýrslur safnaðanna eru skrásettar og heildartölurnar sendar til deildarskrifstofu viðkomandi svæðis. Deildarskrifstofur senda heildartölur hvers lands eða svæðis áfram til aðalstöðvanna.

 Í lok hvers þjónustuárs a er boðberamet í hverju landi fyrir sig reiknað út. Þessar tölur eru lagðar saman til að fá út heildarfjölda votta Jehóva um heim allan. Nákvæmar tölur fyrir hvert land fyrir sig má sjá undir flipanum „Um allan heim“ á vefsíðu okkar. Þessar skýrslur eru okkur hvatning, rétt eins og svipaðar skýrslur hvöttu frumkristna menn. – Postulasagan 2:41; 4:4; 15:3.

Teljum við þá með sem tengjast söfnuðinum en boða ekki trúna?

 Þó að við teljum þá ekki með tölu votta tökum við vel á móti þeim í söfnuðunum. Flestir þeirra sækja árlegu minningarhátíðina um dauða Krists svo það er hægt að sjá í grófum dráttum hve margir þeir eru með því að bera saman fjölda þeirra sem sækja minningarhátíðina og fjölda votta. Árið 2023 sóttu 20.461.767 þessa hátíð.

 Margir sem sækja ekki samkomur okkar njóta góðs af ókeypis biblíunámskeiðum sem við bjóðum upp á. Árið 2023 héldum við að meðaltali 7.281.212 biblíunámskeið í hverjum mánuði og sum þeirra með nokkrum nemendum í einu.

Hvers vegna eru tölur stjórnvalda yfir votta Jehóva hærri en tölur okkar?

 Manntal stjórnvalda ræðst oft af því að spyrja fólk hvaða trúarsöfnuði það tilheyri. Manntalsstofnun Bandaríkjanna sagði til dæmis að kannanir þeirra „leituðust við að komast að því hvort þátttakendur teldu sig tilheyra trúarsamfélagi“ og bætti svo við að tölur þeirra væru „byggðar á persónulegu mati frekar en staðreyndum“. En við teljum hins vegar aðeins þá sem votta Jehóva sem boða öðrum trúna og gefa skýrslu um boðun sína, ekki þá sem líta bara á sig sem votta.

a Þjónustuár er frá 1. september til 31. ágúst. Þjónustuárið 2015 var til dæmis frá 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.