Fyrra bréfið til Þessaloníkumanna 5:1–28

  • Dagur Jehóva kemur (1–5)

    • „Friður og öryggi!“ (3)

  • Vökum og hugsum skýrt (6–11)

  • Hvatningarorð (12–24)

  • Kveðjur (25–28)

5  En um tíma og tíðir er engin þörf að skrifa ykkur, bræður og systur.  Þið vitið vel að dagur Jehóva* kemur eins og þjófur á nóttu.  Þegar menn segja: „Friður og öryggi!“ kemur skyndilega tortíming yfir þá eins og fæðingarhríðir yfir ófríska konu, og þeir komast alls ekki undan.  En þið, bræður og systur, eruð ekki í myrkri svo að dagurinn komi ykkur að óvörum eins og dagsbirtan þjófum  því að þið eruð öll börn* ljóssins og börn* dagsins. Við tilheyrum hvorki nóttinni né myrkrinu.  Sofum því ekki eins og aðrir heldur vökum og hugsum skýrt.  Þeir sem sofa, sofa á nóttinni og þeir sem drekka sig drukkna eru drukknir á nóttinni.  En við sem tilheyrum deginum skulum hugsa skýrt og klæðast trú og kærleika sem brynju og voninni um björgun sem hjálmi  því að Guð valdi okkur ekki til að verða reiði sinni að bráð heldur til að bjargast fyrir atbeina Drottins okkar Jesú Krists. 10  Hann dó fyrir okkur til að við gætum lifað með honum, hvort sem við vökum eða sofum.* 11  Haldið því áfram að uppörva* og styrkja hvert annað eins og þið gerið núna. 12  Nú biðjum við ykkur, bræður og systur, að sýna þeim virðingu sem leggja hart að sér meðal ykkar, veita ykkur forystu í þjónustu Drottins og leiðbeina ykkur. 13  Sýnið þeim kærleika og hafið sérstakar mætur á þeim fyrir starf þeirra. Lifið í friði hvert við annað. 14  Við hvetjum ykkur líka, bræður og systur, til að aðvara* óstýriláta, hughreysta niðurdregna,* styðja þá sem eru veikburða og vera þolinmóð við alla. 15  Gætið þess að enginn gjaldi nokkrum illt með illu en gerið hvert öðru alltaf gott og sömuleiðis öllum öðrum. 16  Verið alltaf glöð. 17  Biðjið stöðugt. 18  Þakkið Guði fyrir alla hluti. Það er vilji hans með ykkur sem fylgið Kristi Jesú. 19  Slökkvið ekki eld andans. 20  Fyrirlítið ekki spádóma. 21  Sannreynið allt, haldið fast við það sem er gott. 22  Forðist hið illa í hvaða mynd sem er. 23  Megi Guð friðarins helga ykkur algerlega. Og megi andi ykkar, sál* og líkami vera óaðfinnanleg og heilbrigð á allan hátt við nærveru Drottins okkar Jesú Krists. 24  Sá sem kallar ykkur er trúr og hann mun láta þetta verða. 25  Bræður og systur, haldið áfram að biðja fyrir okkur. 26  Heilsið öllum bræðrum og systrum með heilögum kossi. 27  Í nafni Drottins legg ég þunga áherslu á að þið látið lesa þetta bréf upp fyrir alla bræðurna og systurnar. 28  Einstök góðvild Drottins okkar Jesú Krists sé með ykkur.

Neðanmáls

Sjá orðaskýringar.
Orðrétt „synir“.
Orðrétt „synir“.
Eða „sofum dauðasvefni“.
Eða „hughreysta“.
Eða „áminna“.
Eða „kjarklitla“.
Eða „líf“. Sjá orðaskýringar.