3. ÞÁTTUR
„Ég er hann“
(Tími: 39:40)
Jesús fær ólík viðbrögð þegar hann kennir Nikódemusi, samverskri konu og íbúum Nasaret. Í þessum þætti má finna eftirfarandi frásögur:
Jesús útskýrir fyrir Nikódemusi hvað það er að fæðast af vatni og anda (Jóhannes 3:1–13)
Móse lyfti upp höggorminum í óbyggðunum, þannig þarf að lyfta upp Mannssyninum (Jóhannes 3:14, 15)
Guð sendi ekki einkason sinn í heiminn til að dæma heiminn heldur til að bjarga honum (Jóhannes 3:16–21)
Jóhannes vitnar um Jesú í síðasta sinn (Jóhannes 3:22–30)
Þeir sem trúa á soninn, þann sem kemur ofan að, hljóta eilíft líf (Jóhannes 3:31–36)
Jóhannes fangelsaður (Markús 6:17–20; Matteus 4:12; 14:3–5; Lúkas 3:19, 20)
Jesús kemur þreyttur að Jakobsbrunni í Síkar í Samaríu (Jóhannes 4:1–6)
Jesús talar við samverska konu (Jóhannes 4:7–15)
Jesús fræðir samversku konuna um sanna tilbeiðslu (Jóhannes 4:16–24)
Jesús segir samversku konunni að hann sé Messías (Jóhannes 4:25, 26)
Samverska konan segir öðrum frá Jesú (Jóhannes 4:27–30)
Jesús líkir þjónustunni við Guð við mat, talar um andlega uppskeru (Jóhannes 4:31–38)
Margir Samverjar trúa því að Jesús sé „frelsari heimsins“ (Jóhannes 4:39–42)
Jesús byrjar boðun í Galíleu (Jóhannes 4:43–45; Markús 1:14, 15; Matteus 4:17; Lúkas 4:14, 15)
Jesús læknar son embættismanns í Kana í Galíleu (Jóhannes 4:46–54)
Jesú hafnað í Nasaret (Lúkas 4:16–30)
Jesús fer til Kapernaúm (Matteus 4:13–16)
Undraverður fiskafli; fyrstu lærisveinarnir (Lúkas 5:1–11; Matteus 4:18–22; Markús 1:16–20)

