Matteus segir frá 4:1–25
4 Andinn leiddi nú Jesú út í óbyggðirnar þar sem Djöfullinn freistaði hans.+
2 Eftir að hafa fastað í 40 daga og 40 nætur var hann orðinn sársvangur.
3 Freistarinn+ kom þá til hans og sagði: „Ef þú ert sonur Guðs segðu þá þessum steinum að verða að brauði.“
4 En hann svaraði: „Skrifað stendur: ‚Maðurinn lifir ekki aðeins á brauði heldur á hverju orði sem kemur af munni Jehóva.‘“*+
5 Þá fór Djöfullinn með hann inn í borgina helgu,+ setti hann upp á virkisvegg* musterisins+
6 og sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs kastaðu þér þá fram af, því að skrifað stendur: ‚Hann sendir engla sína til þín,‘ og: ‚Þeir munu bera þig á höndum sér til að þú hrasir ekki um stein.‘“+
7 Jesús sagði við hann: „Það stendur líka skrifað: ‚Þú skalt ekki ögra Jehóva* Guði þínum.‘“+
8 Eftir það fór Djöfullinn með hann upp á afar hátt fjall, sýndi honum öll ríki heims og dýrð þeirra+
9 og sagði við hann: „Ég skal gefa þér allt þetta ef þú fellur fram og tilbiður mig einu sinni.“
10 Þá svaraði Jesús: „Farðu burt, Satan! Skrifað stendur: ‚Þú skalt tilbiðja Jehóva* Guð þinn+ og honum einum skaltu veita heilaga þjónustu.‘“+
11 Þá yfirgaf Djöfullinn hann+ og englar komu og þjónuðu honum.+
12 Þegar Jesús frétti að Jóhannes hefði verið handtekinn+ hélt hann til Galíleu.+
13 Síðar fór hann frá Nasaret og settist að í Kapernaúm+ við vatnið í héruðum Sebúlons og Naftalí,
14 til að það rættist sem Jesaja spámaður sagði:
15 „Sebúlonsland og Naftalíland við veginn til sjávar,* handan við Jórdan, Galílea þjóðanna!
16 Fólkið sem sat í myrkri sá mikið ljós og ljós+ skein á þá sem sátu í skuggalandi dauðans.“+
17 Upp frá því fór Jesús að boða: „Iðrist, því að himnaríki er í nánd.“+
18 Hann gekk meðfram Galíleuvatni og sá tvo bræður kasta neti í vatnið. Það voru þeir Símon, sem er kallaður Pétur,+ og Andrés bróðir hans en þeir voru fiskimenn.+
19 Hann sagði við þá: „Komið og fylgið mér og ég skal láta ykkur veiða menn.“+
20 Þeir yfirgáfu netin samstundis og fylgdu honum.+
21 Hann gekk áfram og sá tvo aðra bræður, þá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróður hans.+ Þeir voru í bátnum með Sebedeusi föður sínum að bæta netin. Hann kallaði á þá+
22 og þeir yfirgáfu bátinn og föður sinn samstundis og fylgdu honum.
23 Hann fór síðan um alla Galíleu,+ kenndi í samkunduhúsunum,+ boðaði fagnaðarboðskapinn um ríkið og læknaði fólk af hvers kyns sjúkdómum og meinum.+
24 Fréttirnar af honum bárust um allt Sýrland. Fólk kom til hans með alla sem kvöldust og þjáðust af ýmsum sjúkdómum,+ voru andsetnir,+ flogaveikir+ og lamaðir, og hann læknaði þá.
25 Mikill fjöldi fylgdi honum þess vegna frá Galíleu, Dekapólis,* Jerúsalem, Júdeu og landinu handan við Jórdan.
Neðanmáls
^ Sjá viðauka A5.
^ Eða „brjóstrið; efstu brún“.
^ Sjá viðauka A5.
^ Sjá viðauka A5.
^ Sennilega Miðjarðarhaf en samkvæmt sumum heimildum Galíleuvatn.
^ Eða „Tíuborgasvæðinu“.