1. ÞÁTTUR
Hið sanna ljós heimsins
(Tími: 1:11:01)
Jósef og María hljóta þann heiður að ala Jesú upp, barn sem er ólíkt öllum öðrum börnum. Í þessum þætti má finna eftirfarandi frásögur:
Orðið var í upphafi hjá Guði og Orðið var guð (Jóhannes 1:1, 2)
Guð skapaði allt fyrir atbeina Orðsins (Jóhannes 1:3a)
Líf og ljós varð til fyrir atbeina Orðsins (Jóhannes 1:3b, 4)
Myrkrið hefur ekki yfirbugað ljósið (Jóhannes 1:5)
Lúkas lýsir ástæðunni fyrir frásögn sinni, ávarpar Þeófílus (Lúkas 1:1–4)
Gabríel boðar fæðingu Jóhannesar skírara (Lúkas 1:5–25)
Gabríel boðar fæðingu Jesú (Lúkas 1: 26–38)
María heimsækir Elísabetu frænku sína (Lúkas 1:39–45)
María vegsamar Jehóva (Lúkas 1:46–56)
Jóhannes fæðist og er gefið nafn (Lúkas 1:57–66)
Spádómur Sakaría (Lúkas 1:67–80)
María barnshafandi af völdum heilags anda; viðbrögð Jósefs (Matteus 1:18–25)
Jósef og María fara til Betlehem; fæðing Jesú (Lúkas 2:1–7)
Englar birtast fjárhirðum (Lúkas 2:8–14)
Fjárhirðar koma og sjá Jesú í jötunni (Lúkas 2:15–20)
Jesús borinn fram fyrir Jehóva í musterinu (Lúkas 2:21–24)
Símeon sér Krist (Lúkas 2:25–35)
Anna talar um barnið (Lúkas 2:36–38)
Stjörnuspekingar koma og Heródes leggur á ráðin um morð (Matteus 2:1–12)
Jósef flýr með Maríu og Jesú til Egyptalands (Matteus 2:13–15)
Heródes lætur drepa unga drengi í Betlehem og nágrenni (Matteus 2:16–18)
Fjölskylda Jesú sest að í Nasaret (Matteus 2:19–23; Lúkas 2:39, 40)
Jesús 12 ára í musterinu (Lúkas 2:41–50)
Jesús fer aftur til Nasaret með foreldrum sínum (Lúkas 2:51, 52)
Hið sanna ljós var í þann mund að koma í heiminn (Jóhannes 1:9)

