Vottar Jehóva um allan heim

Arúba

  • San Nicolas í Arúba (janúar 1950) – trúboðarnir Henry og Alice Tweed ásamt Oris Mills fyrir framan fyrsta ríkissalinn í Arúba. Oris og eiginmaður hennar, Woodworth, voru síðar trúboðar áratugum saman í Nígeríu og á Sankti Lúsíu.

  • Á Rodgers-strönd í Arúba – hjón bjóða bæklinginn Von um bjarta framtíð.

  • Á Rodgers-strönd í Arúba – vottar sýna myndbandið Hvernig fer biblíunámskeið fram?

  • Á Rodgers-strönd í Arúba – vottar segja frá vonarboðskap Biblíunnar.

Arúba í hnotskurn

  • 108.000 – íbúar
  • 1.106 – boðberar sem veita biblíukennslu
  • 13 – söfnuðir
  • 1 á móti 99 – vottar Jehóva miðað við íbúafjölda

Sjá einnig