UNGT FÓLK SPYR
Ætti ég að láta skírast? – 3. hluti: Hvað heldur aftur af mér?
Stressar það þig að hugsa um að vígjast Jehóva og láta skírast? Þá gæti þessi grein hjálpað þér að takast á við það.
Í þessari grein
Hvað ef ég geri alvarleg mistök eftir skírnina?
Af hverju hugsarðu þannig? Kannski þekkirðu einhvern sem gerði eitthvað alvarlegt af sér og það þurfti að vísa honum úr söfnuðinum. (1. Korintubréf 5:11–13) Þú gætir haft áhyggjur af því að þetta kæmi fyrir þig líka.
„Þegar ég fór að hugsa um að skírast var ég hrædd um að ég myndi gera eitthvað af mér. Ég gat rétt ímyndað mér hvað það yrði hræðilegt fyrir foreldra mína.“ – Rebekah.
Lykilvers: „Illmennið láti af illsku sinni … Hann snúi aftur til Jehóva sem miskunnar honum, til Guðs okkar því að hann fyrirgefur fúslega.“ – Jesaja 55:7.
Veltu þessu fyrir þér: Þeim sem syndga og iðrast ekki er vissulega vísað úr söfnuðinum en Jehóva er miskunnsamur við þá sem eru auðmjúkir, iðrast og taka við leiðréttingu. – Sálmur 103:13, 14; 2. Korintubréf 7:11.
Auk þess er það þannig að þú getur staðist freistingar með hjálp Guðs þó að þú sért ófullkominn. (1. Korintubréf 10:13) Hver ákveður eiginlega hvað þú gerir? Þú? Eða einhver annar?
„Ég var hrædd um að mér yrðu á alvarleg mistök eftir skírnina en svo áttaði ég mig á að það væru mistök að láta ekki skírast. Ég skildi að ég ætti ekki að láta efasemdir um morgundaginn halda aftur af mér í dag.“ – Karen.
Kjarni málsins: Þú ræður sjálfur hvað þú gerir. Rétt eins og langflestir vottar Jehóva getur þú valið að drýgja ekki alvarlega synd. – Filippíbréfið 2:12.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Hvernig get ég staðist freistingu?“
Ég er hræddur við ábyrgðina sem fylgir því að skírast
Af hverju hugsarðu þannig? Þú þekkir ef til vill ungt fólk sem hefur flutt langt frá fjölskyldu og vinum til að gera meira í þjónustunni við Jehóva. Þú hefur kannski áhyggjur af því að fólk ætlist til þess af þér líka.
„Þeir sem eru skírðir geta tekið að sér ýmis verkefni en það eru ekki allir tilbúnir til þess og sumir eru ekki í aðstöðu til þess.“ – Marie.
Lykilvers: „Hver og einn ætti að rannsaka eigin verk án þess að bera sig saman við aðra. Þá hefur hann ástæðu til að gleðjast yfir því sem hann gerir sjálfur.“ – Galatabréfið 6:4.
Veltu þessu fyrir þér: Berðu þig ekki saman við aðra heldur hugsaðu um það sem stendur í Markúsi 12:30: „Þú skalt elska Jehóva Guð þinn af öllu hjarta þínu.“
Í versinu segir að þú eigir að þjóna Jehóva af öllu hjarta þínu – ekki hjarta einhvers annars. Ef þú elskar Jehóva finnurðu leiðir til að þjóna honum eftir bestu getu.
„Það er stórt skref að skírast en það er ekki íþyngjandi. Ef þú velur þér góða vini styðja þeir við bakið á þér. Ef þú tekur að þér ný verkefni smám saman verður þú ánægðari. Þú spillir fyrir sjálfum þér með því að skírast ekki.“ – Julia.
Kjarni málsins: Hugleiddu hversu mikinn kærleika Jehóva hefur sýnt þér. Það verður þér hvatning til að gefa honum það besta sem þú getur. – 1. Jóhannesarbréf 4:19.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Hversu ábyrgðarfullur er ég?“
Mér finnst ég ekki nógu góður til að þjóna Jehóva
Af hverju hugsarðu þannig? Jehóva er æðri öllum öðrum í alheiminum. Mennirnir eru ekki neitt í samanburði við hann. Þú efast ef til vill um að Jehóva viti einu sinni að þú sért til.
„Foreldrar mínir eru vottar Jehóva. Þess vegna hugsaði ég stundum að samband mitt við Jehóva væri kannski bara arfur frá þeim, að Jehóva hefði ekki dregið mig til sín.“ – Natalie.
Lykilvers: „Enginn getur komið til mín nema faðirinn sem sendi mig dragi hann.“ – Jóhannes 6:44.
Veltu þessu fyrir þér: Það að þú skulir vera að hugsa um að skírast gefur líklega til kynna að Jehóva sé að draga þig til sín og vilji eignast nánari vináttu við þig. Langar þig ekki til að þiggja boð hans?
Mundu líka að aðeins Jehóva sjálfur – hvorki þú né nokkur annar – ákveður hverja hann telur þess verðuga að draga til sín. Og í Biblíunni fullvissar hann okkur um að ef við ‚nálgumst hann þá muni hann nálgast okkur‘. – Jakobsbréfið 4:8.
„Þú þekkir Jehóva og hann hefur dregið þig til sín. Það sannar að hann elskar þig. Ef þér finnst þú ekki þess verðugur að þjóna Jehóva er gott að muna að hann er ekki sammála. Og hann hefur alltaf rétt fyrir sér.“ – Selina.
Kjarni málsins: Ef þú uppfyllir þau skilyrði sem Biblían setur varðandi skírn ertu hæfur til að tilbiðja Jehóva. Reyndar á hann skilið að þú tilbiðjir hann. – Opinberunarbókin 4:11.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Af hverju ætti ég að fara með bænir?“

