UNGT FÓLK SPYR
Ætti ég að láta skírast? – 1. hluti: Merking skírnarinnar
Margir unglingar alast upp sem vottar Jehóva og fjöldi þeirra lætur skírast á hverju ári. Ert þú að hugsa um að stíga þetta skref? Þá þarftu fyrst að átta þig á hvað það þýðir að vígjast og skírast.
Hvað er skírn?
Skírnin sem talað er um í Biblíunni er fólgin í algjörri niðurdýfingu í vatn – ekki aðeins að ausa vatni á skírnþega. Hún hefur djúpstæða merkingu.
Að fara á kaf í vatnið er opinber yfirlýsing um að maður lifi ekki lengur bara til að þóknast sjálfum sér.
Að koma upp úr vatninu táknar að maður hefur hafið nýtt líf sem snýst um að gera vilja Guðs.
Með því að láta skírast viðurkennir þú opinberlega að Jehóva hafi vald til að ákveða hvað er rétt og rangt og þú lýsir yfir að þú hafir lofað að gera alltaf það sem hann vill.
Til umhugsunar: Hvaða ástæður höfum við til að skuldbinda okkur til að hlýða Jehóva alla ævi? Sjá 1. Jóhannesarbréf 4:19 og Opinberunarbókina 4:11.
Hvað er vígsla?
Áður en þú skírist þarftu að vígja þig Jehóva í einrúmi. Hvernig gerirðu það?
Þú lofar Jehóva í bæn að þjóna honum að eilífu og að þú ætlir að gera vilja hans óháð því hvað gerist í lífinu og hvað aðrir kjósa að gera.
Skírnin er opinber yfirlýsing um að maður hafi gefið Jehóva þetta loforð. Maður sýnir að héðan í frá tilheyri maður Jehóva og lifi ekki lengur fyrir sjálfan sig. – Matteus 16:24.
Til umhugsunar: Á hvaða hátt verður líf þitt betra ef þú tilheyrir Jehóva? Sjá Jesaja 48:17, 18 og Hebreabréfið 11:6.
Hvers vegna er mikilvægt að skírast?
Jesús sagði að fylgjendur hans þyrftu að skírast og það gildir líka um kristna menn nú á dögum. (Matteus 28:19, 20) Biblían segir reyndar að það sé nauðsynlegt að skírast til að fá eilíft líf. – 1. Pétursbréf 3:21.
Hvötin að baki því að láta skírast ætti samt að vera sú að þú elskar Jehóva og að sambandið við hann er þér dýrmætt. Þú ættir að hafa sama hugarfar og sálmaskáldið sem skrifaði: ‚Hvernig á ég að endurgjalda Jehóva allt það góða sem hann hefur gert fyrir mig? Ég ákalla nafn Jehóva. Ég efni heit mín við Jehóva.‘ – Sálmur 116:12–14.
Til umhugsunar: Hvað hefur Jehóva gert fyrir þig og hvernig geturðu endurgoldið honum það? Sjá 5. Mósebók 10:12, 13 og Rómverjabréfið 12:1.

