íslenska
Hvers vegna ætti ég að vera heiðarlegur?
https://cms-imgp.jw-cdn.org/img/p/502015231/univ/art/502015231_univ_sqr_xl.jpg
ijwyp grein 47

UNGT FÓLK SPYR

Hvers vegna ætti ég að vera heiðarlegur?

Hvers vegna ætti ég að vera heiðarlegur?

 Hvers vegna sumt fólk er óheiðarlegt

 Nú á tímum gæti heiðarleiki virst vera okkur í óhag. Sumir gætu hugsað:

  •   „Ef ég lýg ekki að foreldrum mínum gæti mér verið refsað.

  •   „Ef ég svindla ekki á prófinu gæti ég fallið.“

  •   „Ef ég stel ekki þessari vöru þarf ég að spara fyrir henni.“

 „Hvað er stóra málið?“ gætu sumir hugsað. „Eru ekki allir óheiðarlegir?“

 Svarið við þeirri spurningu er nei. Margt fólk – þar á meðal ungt fólk – er sannfært um að heiðarleiki borgi sig og það er góð ástæða fyrir því. „Það sem maður sáir, það uppsker hann,“ segir í Biblíunni. (Galatabréfið 6:7) Með öðrum orðum hafa verk okkar alltaf afleiðingar, hvort sem þær eru góðar eða slæmar.

 Skoðum hvaða slæmar afleiðingar sumir hafa uppskorið af því að ljúga.

„Ég laug að mömmu um það að ég hefði ekki talað við ákveðinn strák. Hún gat sýnt fram á að ég væri að segja ósatt. Eftir að hafa logið þessu þrisvar sinnum fékk mamma nóg. Ég mátti ekki fara út í tvær vikur og mátti hvorki nota símann minn né horfa á sjónvarpið í mánuð. Ég laug aldrei að foreldrum mínum eftir þetta.“ – Anita.

 Til umhugsunar: Hvers vegna gæti það tekið Anitu tíma að ávinna sér aftur traust mömmu sinnar?

 Biblían segir: „Núna þegar þið eruð hætt öllum blekkingum skuluð þið öll tala sannleika við náungann.“ – Efesusbréfið 4:25.

„Ég laug að foreldum mínum og hélt að ég kæmist upp með það þangað til þau báðu mig að segja aftur frá því sem hafði gerst. Það var svo fjarri sannleikanum að ég gat ekki munað smáatriðin í sögu minni. Þú lendir ekki í þessum vanda þegar þú segir sannleikann.“ – Anthony.

 Til umhugsunar: Hvernig hefði Anthony getað sparað sér þessar vandræðalegu aðstæður?

 Biblían segir: „Jehóva hefur andstyggð á lygavörum en yndi af þeim sem eru heiðarlegir.“ – Orðskviðirnir 12:22.

„Ég á vinkonu sem skreytir sögur sínar. Hún ýkir og tekur hlutina úr samhengi. Mér þykir vænt um hana og ég reyni að taka ekki of alvarlega það sem hún segir. En það er mjög erfitt að trúa henni eða treysta.“ – Yvonne.

 Til umhugsunar: Hvernig gætu ýkjur og „minniháttar“ lygar haft áhrif á mannorð vinkonu hennar?

 Biblían segir: ‚Við viljum vera heiðarleg í öllu sem við gerum.‘ – Hebreabréfið 13:18.

Sprunga í undirstöðu getur veikt alla bygginguna og eins getur óheiðarleiki grafið undan góðu mannorði þínu.

 Hvers vegna heiðarleiki borgar sig

 Hugleiddu nú sumt af því góða sem hlýst af því að vera heiðarlegur.

„Kona nokkur sem gekk fyrir framan mig missti peninga. Ég kallaði á eftir henni og rétti henni peningana. Hún var svo þakklát og sagði: ‚Mikið var þetta elskulegt af þér. Fáir eru nógu heiðarlegir til að gera þetta.‘ Mér leið vel yfir því að fá viðurkenningu fyrir að gera það sem er rétt.“ – Vivian.

 Til umhugsunar: Hvers vegna ætli konan hafi verið undrandi yfir að sjá slíkan heiðarleika? Hvernig var það Vivian til góðs að vera heiðarleg?

 Biblían segir: ‚Hamingjusamir eru þeir sem gera alltaf það sem er rétt.‘ – Sálmur 106:3.

„Fjölskylda mín rekur ræstingarfyrirtæki og stundum þegar við þrífum skrifstofur sjáum við smámynt á gólfinu. Þegar það gerist setjum við peninginn á nærliggjandi borð. Einn starfsmaðurinn var svolítið pirraður yfir heiðarleika okkar. ‚Þetta er nú bara smáræði,‘ sagði hún. En veistu hvað? Hún treysti okkur alltaf.“ – Julia.

 Til umhugsunar: Hvernig gæti heiðarleiki Juliu komið henni til góða þegar hún þarf að fá meðmæli fyrir annað starf?

 Biblían segir: „Leggðu þig allan fram til að geta þóknast Guði, að vera verkamaður sem þarf ekki að skammast sín fyrir neitt.“ – 2. Tímóteusarbréf 2:15.

„Ég fékk útborgaða upphæð sem samsvaraði 80 klukkustunda vinnu í stað 64. Þó að það hefði verið þægilegt að halda upphæðinni fyrir mig gat ég það einfaldlega ekki. Ég benti yfirgjaldkeranum á þetta og hún var mjög þakklát. Rekstur fyrirtækisins gengur vel en ég gat ekki hugsað mér að halda í peninga sem voru eins og ránsfengur.“ – Bethany.

 Til umhugsunar: Er minni óheiðarleiki fólginn í því að stela frá fyrirtæki en frá einstaklingi?

 Biblían segir: „Jehóva hefur andstyggð á hinum svikula en er náinn vinur hinna réttlátu.“ – Orðskviðirnir 3:32.