UNGT FÓLK SPYR
Ætti ég að láta skírast? – 2. hluti: Að búa sig undir skírn
Ef þú lifir eftir meginreglum Biblíunnar og ert að byggja upp vináttu við Guð er eðlilegt að þú veltir því fyrir þér hvort þú eigir að skírast. Hvernig veistu hvort þú sért tilbúinn? a
Í þessari grein
Hvað þarf ég að vita mikið?
Að búa sig undir skírn snýst ekki um að leggja staðreyndir á minnið eins og maður kannski gerir þegar maður er að læra fyrir próf. En þú þarft að nota rök og skynsemi til að byggja upp sannfæringu um að það sem Biblían kennir sé sannleikur. (Rómverjabréfið 12:1) Tökum dæmi:
Ertu sannfærður um að Guð sé til og að hann eigi skilið að þú tilbiðjir hann?
Biblían segir: „Sá sem gengur fram fyrir Guð verður að trúa að hann sé til og að hann launi þeim sem leita hans í einlægni.“ – Hebreabréfið 11:6.
Spyrðu þig: Af hverju trúi ég á Guð? (Hebreabréfið 3:4) Af hverju á hann skilið að ég tilbiðji hann? – Opinberunarbókin 4:11.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Sköpun eða þróun? – 1. hluti: Hvers vegna ætti ég að trúa á Guð?“
Ertu sannfærður um að boðskapur Biblíunnar sé frá Guði?
Biblían segir: „Öll Ritningin er innblásin af Guði og gagnleg til að kenna, áminna, leiðrétta og aga fólk í að gera það sem er rétt.“ – 2. Tímóteusarbréf 3:16.
Spyrðu þig: Af hverju trúi ég að Biblían sé ekki bara byggð á hugmyndum manna? – Jesaja 46:10; 1. Þessaloníkubréf 2:13.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Hvernig get ég haft gagn af Biblíunni? – 1. hluti: Kynntu þér Biblíuna.“
Ertu sannfærður um að Jehóva noti söfnuðinn til að koma vilja sínum til leiðar?
Biblían segir: „[Guði] sé dýrðin um ókomnar kynslóðir og alla eilífð fyrir það sem hann hefur gert fyrir milligöngu safnaðarins og Krists Jesú.“ – Efesusbréfið 3:21.
Spyrðu þig: Lít ég svo á að það sem ég læri af Biblíunni á samkomum komi frá mönnum eða frá Jehóva? (Matteus 24:45) Mæti ég á samkomur jafnvel þegar foreldrar mínir komast ekki (ef þeir leyfa það)? – Hebreabréfið 10:24, 25.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Af hverju ætti ég að sækja samkomur í ríkissalnum?“
Hvað þarf ég að gera?
Þú þarft ekki að vera fullkominn til að geta látið skírast. En þú ættir að sýna að þú virkilega viljir ‚snúa baki við hinu illa og gera gott‘. (Sálmur 34:14) Tökum dæmi:
Er Jehóva ánægður með líferni þitt?
Biblían segir: „Varðveitið góða samvisku.“ – 1. Pétursbréf 3:16.
Spyrðu þig: Hvernig hef ég sýnt að ég nota ‚skilningsgáfuna og hef þjálfað hana til að greina rétt frá röngu‘? (Hebreabréfið 5:14) Hef ég einhvern tíma lent í því að aðrir reyndu að fá mig til að gera eitthvað rangt en ég stóðst þrýstinginn? Hvetja vinir mínir mig til að gera það sem er rétt? – Orðskviðirnir 13:20.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „How Can I Train My Conscience?“
Berðu ábyrgð á verkum þínum?
Biblían segir: „Við þurfum … öll að standa Guði reikningsskap gerða okkar.“ – Rómverjabréfið 14:12.
Spyrðu þig: Hversu heiðarlegur er ég við sjálfan mig og aðra? (Hebreabréfið 13:18) Viðurkenni ég mistök mín eða á ég það til að reyna að fela þau eða kenna öðrum um? – Orðskviðirnir 28:13.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Hvað á ég að gera þegar mér verða á mistök?“
Styrkir þú vináttu þína við Jehóva?
Biblían segir: „Nálgist Guð og þá mun hann nálgast ykkur.“ – Jakobsbréfið 4:8.
Spyrðu þig: Hvað geri ég til að nálgast Jehóva? Hversu oft les ég í Biblíunni? (Sálmur 1:1, 2) Bið ég bænir reglulega? (1. Þessaloníkubréf 5:17) Ræði ég mikilvæg mál við Jehóva? Eru vinir mínir vinir Jehóva? – Sálmur 15:1, 4.
Viltu lesa meira um málið? Sjá greinina „Hvernig get ég haft gagn af Biblíunni? – 2. hluti: Gerðu biblíulestur ánægjulegan“ og „Af hverju ætti ég að fara með bænir?“
TILLAGA: Til að búa þig betur undir skírnina gætirðu lesið 37. kafla bókarinnar Spurningar unga fólksins – svör sem duga, 2. bindi. Farðu vel yfir vinnublaðið á bls. 308 og 309.
a Lestu greinina „Ætti ég að láta skírast? – 1. hluti“ sem fjallar um þýðingu og mikilvægi þess að vígjast Guði og skírast.

