Hvað finnst Guði um þjáningar þínar?
Sumir halda að Guð hvorki taki eftir þjáningum né láti sig þær varða.
HUGLEIDDU ÞAÐ SEM BIBLÍAN SEGIR
Guð tekur bæði eftir þeim og lætur sig þær varða
„Drottinn sá nú að illska mannanna var mikil orðin á jörðinni ... og hann hryggðist í hjarta sínu.“ – 1. Mósebók 6:5, 6.
Guð bindur enda á allar þjáningar
„Innan stundar er hinn óguðlegi horfinn, ef þú leitar hans er hann ekki að finna. En hinir hógværu fá landið til eignar og gleðjast yfir miklu gengi.“ – Sálmur 37:10, 11.
Hvernig vill Guð að líf okkar sé?
„Ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Þegar þér ákallið mig og komið og biðjið til mín mun ég bænheyra yður.“ – Jeremía 29:11, 12.
„Nálægið ykkur Guði og þá mun hann nálgast ykkur.“ – Jakobsbréfið 4:8.