Heimur í uppnámi – hvað getur þú gert?

Heimur í uppnámi – hvað getur þú gert?

Finnst þér að vandamálin sem þjaka heimsbyggðina séu farin að hafa áhrif á þitt daglega líf? Upplifir þú eitthvað af eftirfarandi þar sem þú býrð?

  • vopnuð átök

  • faraldra

  • náttúruhamfarir

  • fátækt

  • fordóma

  • ofbeldisglæpi

Þegar harmleikur á sér stað er það mörgum fórnarlömbum áfall og þau finna til vonleysis. Sumir verða það sem kallað hefur verið tilfinningalega flatir. En langvarandi áfallaástand og tilfinningadoði gerir aðeins illt verra.

Mitt í glundroðanum þarftu að grípa til aðgerða til að vernda ástvini þína, heilsu, afkomu og hamingju.

Hvað geturðu gert til að draga úr áhrifum glundroðans á þig?