HEIMUR Í UPPNÁMI

3 | Verndaðu sambönd þín

3 | Verndaðu sambönd þín

HVERS VEGNA ER ÞAÐ MIKILVÆGT?

Vaxandi kvíði yfir glundroða heimsins getur valdið því að fólk vanræki óafvitandi samskiptanet sitt.

  • Fólki hættir til að einangra sig frá vinum sínum.

  • Hjón verða þrætugjarnari.

  • Foreldrar gefa lítinn eða engan gaum að kvíða barna sinna.

Það sem þú ættir að vita

  • Vinátta er nauðsynleg fyrir heilsu þína og jafnvægi, sér í lagi á erfiðum tímum.

  • Álagið vegna glundroða heimsins getur reynt á fjölskyldulíf þitt með óvæntum hætti.

  • Óhugnanlegar fréttir gætu haft meiri áhrif á börnin þín en þú gerir þér grein fyrir.

Það sem þú getur gert núna

Biblían segir: „Sannur vinur elskar alltaf og er sem bróðir á raunastund.“ – Orðskviðirnir 17:17.

Hugsaðu til einhvers sem er hjálpsamur og getur gefið hagnýt ráð. Bara það að vita að einhverjum er annt um þig getur gefið þér styrk til að horfast í augu við áskoranir dagsins.