Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

ÚR ÝMSUM ÁTTUM

Trúarbrögð í brennidepli

Trúarbrögð í brennidepli

Trú ætti að sameina fólk. Hins vegar hafa trúarbrögð allt of oft valdið átökum og tortryggni.

HEIMURINN

Meira en þrír af hverjum fjórum jarðarbúum búa við verulega skert trúfrelsi, annaðhvort vegna stefnu yfirvalda eða andúðar samfélagsins. Fjöldi landa, þar sem trúarhópar í minnihluta urðu fyrir hatursárásum, nánast tvöfaldaðist á fimm ára tímabili fyrir skömmu.

TIL UMHUGSUNAR: Af hvaða ólíku ástæðum eru sumir fjandsamlegir í garð trúarbragða? – Matteus 23:27, 28; Jóhannes 15:19.

ENGLAND

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, skrifar í sunnudagsblaðið The Observer að nýlegar hryðjuverkaárásir séu margar hverjar sprottnar af „afskræmingu á trúarbrögðum“. Hann bætir við: „Líklegra er að styrjaldir þessarar aldar brjótist út frá menningarlegu og trúarlegu ósætti en pólitískum öfgahreyfingum eins og var raunin á tuttugustu öldinni.“

TIL UMHUGSUNAR: Hvers vegna valda trúarbrögð svo oft sundrungu? – Markús 7:6-8.

ÁSTRALÍA

Samkvæmt Hagstofu Ástralíu segist fimmti hver Ástrali ekki tilheyra trúfélagi. Og „að tilheyra trúfélagi er ekki það sama og að vera virkur í trúarlegum athöfnum“, segir í skýrslunni. Aðeins 15 prósent karla og 22 prósent kvenna, sem tilheyra trúfélagi, segjast vera virkir meðlimir í andlegum eða trúarlegum hópum.

TIL UMHUGSUNAR: Hvaða slæmu verk má sjá innan margra trúarstofnanna? – Matteus 7:15-20.