LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU
Kærleikur auðkennir sannkristna menn – fagnaðu sannleikanum
AF HVERJU ER ÞAÐ MIKILVÆGT? Til að líkja eftir Jesú, verðum við að bera sannleikanum um fyrirætlun Guðs vitni. (Jóh 18:37) Við verðum líka að fagna sannleikanum, tala sannleika og íhuga allt sem er satt þótt við búum í heimi sem er gegnsýrður af ósannindum og ranglæti. – 1Kor 13:6; Fil 4:8.
HVERNIG FÖRUM VIÐ AÐ?
Vertu ákveðinn í að hlusta hvorki á skaðlegt slúður né bera það út. – 1Þess 4:11.
Gleðstu ekki yfir ógæfu annarra.
Gleðstu yfir því sem er jákvætt og uppörvandi.
HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ „BERIÐ ELSKU HVER TIL ANNARS“ – GLEÐSTU EKKI YFIR RANGLÆTI EN FAGNAÐU SANNLEIKANUM OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:
Í hvaða skilningi má segja að Debbie hafi ,glaðst yfir ranglæti‘?
Hvernig beindi Alice samræðunum við Debbie inn á jákvæða braut?
Nefndu eitthvað jákvætt sem við getum talað um?
Gleðjumst ekki yfir ranglæti en fögnum sannleikanum.