ÚR SÖGUSAFNINU
Fagnaðarboðskapnum útvarpað
Sunnudaginn 24. febrúar 1924 fór fyrsta útsending Biblíunemendanna a á nýrri útvarpsstöð þeirra, WBBR, í loftið. Hvernig var þessi fyrsta útsending? Hverjir heyrðu hana? Og hvernig hafa Vottar Jehóva notað nýjustu tækni til að gera ‚fagnaðarboðskapinn um ríkið‘ heyrinkunnan um alla jörðina? – Matteus 24:14.
Tæknimaður við stjórnstöð WBBR.
„Við fórum í loftið“
Fyrsta útsendingin hófst klukkan 20:30 og stóð yfir í tvær klukkustundir. Hún kom frá nýbyggðri útvarpsstöð á Staten Island í New York-borg. Aðal hljóðmaðurinn, bróðir Ralph Leffler, minnist þess að „þetta var tilfinningaþrungin stund“ í upptökuherberginu. „Á eftir að heyrast til okkar?“ hugsaði hann. „Ég kveikti á tækjunum, við fórum í loftið og vonuðum það besta.“
Kynnir þessarar sögulegu útsendingar var bróðir Victor Schmidt sem var jafnframt útvarpsstjórinn. Hann hóf dagskrána með því að kynna nokkra hæfileikaríka flytjendur sem allir voru Biblíunemendur. Fyrst spilaði bróðir klassísk tónverk á píanó. Síðan söng Cora Wellmann sálminn „The Ninety and Nine“ sem byggir á dæmisögu Jesú um týnda sauðinn. (Lúkas 15:4–7) Aðrir flytjendur komu á eftir, þar með talinn bróðir Frederick W. Franz sem söng lagið „The Penitent“, sem segir sögu týnda sonarins. – Lúkas 15:11–25.
Opnunardagskrá WBBR-stöðvarinnar.
Joseph F. Rutherford sem veitti starfi Biblíunemendanna forstöðu um þessar mundir flutti ræðu til að vígja útvarpsstöðina „Messíasarríkinu“. Hann sagði: „Fyrst herra okkar hefur nú þóknast að þessi útvarpsstöð yrði að veruleika má ætla að það sé vilji hans að hún verði notuð til að fræða fólk um uppfyllingu stórkostlegra spádóma hans.“
„Við misstum ekki af einu einasta orði“
Margir áheyrendur í norðaustur hluta Bandaríkjanna heyrðu þessa fyrstu útsendingu. Áheyrandi í Morrisville í Vermont, sem er í meira en 320 km fjarlægð, segir svo frá: „Það gleður mig að tilkynna að ég heyrði útvarpsefnið þar sem ég er staddur … rödd bróður Rutherfords heyrðist mjög skýrt … við misstum ekki af einu einasta orði.“ Meira að segja tókst áheyranda í Monticello í Flórída að tengjast útsendingunni. Þessi nýja útvarpsstöð naut mikilla vinsælda og þakkarbréfin byrjuðu að streyma inn.
Joseph Rutherford stendur við hljóðnemann í hljóðveri WBBR-útvarpsstöðvarinnar. Victor Schmidt er kynnir.
Útvarpsstöðin hélt áfram að senda út boðskap Guðsríkis í 33 ár b en hún náði fyrst og fremst til norðaustur hluta Bandaríkjanna. Stundum tengdist WBBR öðrum útvarpsstöðvum og gat þannig náð til milljóna áheyrenda í Bandaríkjunum, Kanada og víðar. Árbók Votta Jehóva 1975 greinir svo frá: „Árið 1933 náðu þessar útsendingar hámarki þegar 408 útvarpsstöðvar voru notaðar til að útvarpa boðskapnum í sex heimsálfum og 23.783 mismunandi biblíutengdar ræður voru fluttar … Á þessum árum var hægt að snúa leitarbendlinum á útvarpstækinu og tengjast útsendingum Varðturnsfélagsins sem komu samtímis frá dreifðum útvarpsstöðvum. Oft á tíðum voru útvarpsbylgjurnar fullar af sannleiksorðum Guði til lofs.“
Boðunin hús úr húsi kemur í stað útvarpsins
Þegar Biblíunemendurnir byrjuðu að nota WBBR voru að meðaltali 1.064 boðberar Guðsríkis í Bandaríkjunum. Útsendingarnar hjálpuðu þessum litla hópi heilmikið. En árið 1957 var meðaltal boðbera komið upp í 187.762 í Bandaríkjunum og 653.273 um heim allan. Þessi kappsömu trúsystkini okkar höfðu þar að auki fengið þjálfun á samkomum í boðuninni hús úr húsi og öðrum greinum þjónustunnar. Þar af leiðandi gátu þau boðað trúna með betri árangri.
Þessar jákvæðu breytingar knúðu bræðurna sem fóru með forystu til að endurmeta gagnsemi útvarpsútsendinga miðað við að tala við fólk í heimahúsum. Hver var árangurinn? Sú ákvörðun var tekin að selja WBBR sem var eina útvarpsstöðin sem enn var í eigu Varðturnsfélagsins og starfrækt af því. Stöðin var seld þann 15. apríl 1957. Daginn áður var haldin sérstök kveðjuútsending þar sem Nathan H. Knorr var spurður hvers vegna væri verið að selja útvarpsstöðina. Hann útskýrði að fjölgun Votta Jehóva væri aðallega að þakka boðuninni hús úr húsi. „Útsendingar WBBR voru mörgum mikil hjálp,“ sagði hann og bætti svo við: „En aukningin hefur ekki verið meiri á þeim svæðum sem WBBR nær til en almennt gerist í heiminum.“ Bræðurnir drógu því þá ályktun að gera mætti meira gagn með boðuninni hús úr húsi en með því að nota útvarp. En þetta var engan veginn endir útsendinga. Áratugum síðar skutu þær upp kollinum á ný, en í nýrri mynd.
Sjónvarpið í dag
Þann 6. október 2014 gerðist merkisatburður í sögu Votta Jehóva. Netsjónvarpsstöð sem fékk nafnið Sjónvarp Votta Jehóva fór í loftið. Vottar Jehóva og aðrir tengjast mánaðarlegum útsendingum með því að nota vafra, JW Library-appið, streymi eða gervihnattamóttakara. c Engu að síður notfærir fólk Jehóva sér enn þá útvarp og sjónvarp til að koma boðskapnum á framfæri. Hvernig stendur á því?
Fyrsta útsending Sjónvarps Votta Jehóva í október 2014.
Á undanförnum árum hefur söfnuðurinn notað útvarp og sjónvarp sem utanaðkomandi sjónvarpsstöðvar bjóða upp á til að senda út vikulegar safnaðarsamkomur og mót á svæðum þar sem netsamband er óstöðugt. Þessar útsendingar hafa líka náð til margra sem eru ekki vottar, þar með talið fólks sem sýnir boðskap okkar áhuga. Á árunum 2021 og 2022 greindu forstöðumenn útvarpsstöðva til dæmis deildarskrifstofunni í Austur-Afríku frá því að margir sem ekki eru vottar Jehóva hafi tjáð þakklæti sitt fyrir samkomurnar. Fjöldi áheyrenda í Kenía, Suður-Súdan og Tansaníu báðu um að fá biblíunámskeið.
En Vottar Jehóva nota fyrst og fremst boðunina hús úr húsi, ritatrillur og vefsíðuna jw.org til að koma boðskapnum um Guðsríki á framfæri um allan heim. Vefsíðan okkar veitir þeim sem hafa áhuga ókeypis aðgang að Biblíunni og biblíutengdum ritum á yfir 1.080 tungumálum. Fólk getur líka fengið svör við spurningum sínum varðandi Biblíuna og upplýsingar um hvar og hvenær samkomur okkar fara fram. Með hjálp allra þessara boðleiða hafa Vottar Jehóva gert fagnaðarboðskapinn aðgengilegri en nokkru sinni fyrr í sögunni. Fagnaðarboðskapurinn er svo sannarlega „boðaður um alla jörðina“ eins og Biblían sagði fyrir. – Matteus 24:14.
a Biblíunemendurnir tóku upp nafnið Vottar Jehóva árið 1931.
b Um tíma ráku Vottar Jehóva líka útvarpsstöðvar í öðrum löndum eins og Ástralíu og Kanada.
c Sjá greinina „A JW Satellite Channel Reaches Where Internet Does Not.“

