AspctStyle/stock.adobe.com

Jesús mun binda enda á stríð

Jesús mun binda enda á stríð

 Meðan Jesús var á jörðinni sýndi hann að hann elskaði fólk innilega. Hann fórnaði meira að segja lífi sínu fyrir það. (Matteus 20:28; Jóhannes 15:13) Innan skamms sýnir hann aftur kærleika sinn í garð fólks þegar hann notar vald sitt sem konungur Guðsríkis til að ‚stöðva stríð um alla jörð‘. – Sálmur 46:9.

 Sjáðu hvað Biblían segir um það sem Jesús á eftir að gera:

  •   „Hann bjargar hinum fátæka sem hrópar á hjálp, hinum bágstadda og þeim sem enginn hjálpar. Hann mun finna til með bágstöddum og snauðum og bjarga lífi fátækra. Hann frelsar þá undan kúgun og ofbeldi.“ – Sálmur 72:12–14.

 Hvernig getum við sýnt að við séum þakklát fyrir allt sem Jesús hefur gert og ætlar að gera fyrir okkur? Ein leið til þess er að fræðast meira um „fagnaðarboðskapinn um ríki Guðs“, en það er boðskapurinn sem Jesús flutti. (Lúkas 4:43) Lestu greinina „Hvað er Guðsríki?