Jesaja 40:1–31
40 „Huggið fólk mitt, huggið það,“ segir Guð ykkar.+
2 „Talið hlýlega til* Jerúsalemog boðið henni að nauðungarvinna hennar sé á enda,að skuld hennar sé greidd.+
Af hendi Jehóva eru allar syndir hennar endurgoldnar að fullu.“*+
3 Rödd manns kallar í óbyggðunum:
„Greiðið veg Jehóva!+
Ryðjið beina braut+ um eyðimörkina handa Guði okkar.+
4 Hver dalur hækkiog hvert fjall og hæð lækki.
Óslétt jörðin skal verða að flatlendiog grýtt jörðin að dalsléttu.+
5 Dýrð Jehóva opinberast+og allir munu* sjá það+því að Jehóva hefur talað.“
6 Hlustaðu! Einhver segir: „Kallaðu!“
Annar spyr: „Hvað á ég að kalla?“
„Allir menn eru* eins og grængresi.
Tryggur kærleikur þeirra er eins og blóm á engi.+
7 Grasið skrælnar,blómin visna+því að Jehóva blæs á þau.+
Já, mennirnir eru ekki annað en gras.
8 Grængresið skrælnar,blómin visnaen orð Guðs okkar varir að eilífu.“+
9 Gakktu upp á hátt fjall,þú kona sem flytur Síon gleðifréttir.+
Hrópaðu hátt,þú kona sem flytur Jerúsalem gleðifréttir.
Hrópaðu, vertu ekki hrædd.
Boðaðu borgum Júda: „Hér er Guð ykkar.“+
10 Sjáið, alvaldur Drottinn Jehóva kemur í mættiog hann ríkir með hendi sinni.+
Sjáið, hann hefur launin með sér,launin sem hann greiðir eru frammi fyrir honum.+
11 Eins og hirðir annast hann hjörð sína.+
Hann smalar lömbunum saman með hendinniog ber þau í fangi sínu.
Blíðlega leiðir hann ærnar sem eru með lömb á spena.+
12 Hver hefur mælt vötnin í lófa sínum+og tekið mál af himninum með spönn* sinni?
Hver hefur safnað dufti jarðar í mæliker+eða vegið fjöllin á vogog hæðirnar á vogarskálum?
13 Hver hefur mælt* anda Jehóvaog hver getur ráðlagt honum og kennt?+
14 Hjá hverjum leitaði hann ráða til að fá skilning?
Hver fræðir hann um veg réttlætisins?
Hver veitir honum þekkingueða vísar honum veginn til sannrar visku?*+
15 Þjóðirnar eru eins og dropi úr fötuog eru metnar sem ryklag á vogarskálum.+
Hann lyftir upp eyjunum eins og væru þær rykkorn.
16 Jafnvel öll tré Líbanons nægja ekki sem eldiviður*og villidýrin þar nægja ekki sem brennifórn.
17 Allar þjóðir eru sem ekkert fyrir honum,+hann metur þær sem loft, eins og þær séu ekki til.+
18 Við hvern getið þið líkt Guði?+
Er eitthvað til sem jafnast á við hann?+
19 Handverksmaður steypir skurðgoð,gullsmiðurinn leggur það gulli+og býr til silfurkeðjur.
20 Hann velur sér tré að fórnargjöf,+tré sem fúnar ekki.
Hann finnur færan handverksmanntil að skera út líkneski sem veltur ekki um koll.+
21 Vitið þið ekki?
Hafið þið ekki heyrt?
Hefur ykkur ekki verið sagt það frá upphafi?
Hafið þið ekki skilið það sem var augljóst frá grundvöllun jarðar?+
22 Hann situr hátt yfir jarðarkringlunni*+og íbúar hennar eru eins og engisprettur.
Hann þenur út himininn eins og þunna slæðuog breiðir úr honum eins og tjaldi til að búa í.+
23 Hann sviptir háttsetta menn völdumog gerir dómara* jarðar að engu.
24 Þeir eru varla gróðursettir,þeim er varla sáð,stofn þeirra hefur varla fest rætur í jörðfyrr en þeir fjúka burt og visnaog vindurinn ber þá burt eins og hálm.+
25 „Við hvern getið þið líkt mér? Hver er jafningi minn?“ spyr Hinn heilagi.
26 „Horfið upp til himins og sjáið.
Hver hefur skapað allt þetta?+
Það er hann sem leiðir stjörnurnar eins og her og telur þær,hann nefnir þær allar með nafni.+
Hann býr yfir svo gríðarlegum krafti og ógurlegum mætti+að enga þeirra vantar.
27 Jakob, af hverju segir þú, og Ísrael, af hverju fullyrðir þú:
‚Vegir mínir eru huldir Jehóva,Guði er sama um óréttlætið sem ég má þola‘?+
28 Veistu ekki? Hefurðu ekki heyrt?
Jehóva, sem skapaði endimörk jarðar, er Guð um alla eilífð.+
Hann þreytist aldrei né örmagnast.+
Viska* hans er órannsakanleg.*+
29 Hann gefur hinum þreytta kraftog máttlitlum fullan styrk.+
30 Drengir þreytast og örmagnastog ungir menn hrasa og falla
31 en þeir sem vona á Jehóva fá nýjan kraft.
Þeir svífa hátt á vængjum eins og ernir.+
Þeir hlaupa og örmagnast ekki,þeir ganga og þreytast ekki.“+
Neðanmáls
^ Orðrétt „Talið til hjarta“.
^ Eða „tvöfalt“.
^ Orðrétt „allt hold mun“.
^ Orðrétt „Allt hold er“.
^ Bilið milli góma þumalfingurs og litlafingurs útglenntra. Sjá viðauka B14.
^ Eða hugsanl. „skilið“.
^ Eða „að sönnum skilningi“.
^ Eða „til að halda eldi lifandi“.
^ Eða „jarðarhnettinum“.
^ Eða „valdhafa“.
^ Eða „Skilningur“.
^ Eða „óskiljanleg“.

