Jesaja 14:1–32
14 Jehóva mun sýna Jakobi miskunn+ og velja Ísrael á ný.+ Hann lætur þá setjast að* í landi sínu.+ Útlendingar munu búa hjá þeim og sameinast ætt Jakobs.+
2 Fólk af öðrum þjóðum tekur þá og flytur þá heim og Ísraelsmenn eignast þá að þjónum og þjónustustúlkum+ í landi Jehóva. Þeir hneppa í ánauð þá sem héldu þeim í ánauð og ráða yfir þeim sem þvinguðu þá til vinnu.*
3 Daginn sem Jehóva veitir þér hvíld frá þjáningum þínum og óróleika og þrælkuninni sem þú máttir þola+
4 muntu hæðast að konunginum í Babýlon með þessu kvæði:
„Þrælahaldarinn er búinn að vera!
Kúgunin er á enda!+
5 Jehóva hefur brotið barefli hinna illu,staf drottnaranna,+
6 þann sem barði þjóðir linnulaust,+þann sem undirokaði þjóðir í reiði sinni og ofsótti þær vægðarlaust.+
7 Öll jörðin hefur nú fengið hvíld og ró,fólk hrópar af gleði.+
8 Jafnvel einitrén gleðjast yfir þérásamt sedrustrjánum í Líbanon.
Þau segja: ‚Síðan þú féllsthefur enginn skógarhöggsmaður komið til að höggva okkur.‘
9 Gröfin* kemst í uppnámþegar ljóst er að þú ert á leiðinni.
Þín vegna vekur hún þá sem liggja þar lífvana,alla harðstjóra* jarðar.
Hún lætur alla konunga þjóðanna rísa úr hásætum sínum.
10 Þeir taka allir til máls og segja við þig:
‚Ertu orðinn veikburða eins og við?
Ertu orðinn eins og við?
11 Stolti þínu er steypt ofan í gröfina*ásamt strengjahljómi þínum.+
Maðkar eru breiddir undir þigog ormar eru ábreiða þín.‘
12 Af himni ertu fallinn,þú skínandi stjarna, sonur morgunroðans.
Þú ert felldur til jarðar,þú sem yfirbugaðir þjóðir.+
13 Þú hugsaðir með þér: ‚Ég ætla að stíga upp til himins,+reisa hásæti mitt ofar stjörnum Guðs.+
Ég tek mér sæti á samkomufjallinulengst í norðri.+
14 Ég stíg upp ofar skýjunum,ég ætla að líkjast Hinum hæsta.‘
15 En í staðinn verður þér varpað niður í gröfina,*niður í dýpsta afkimann.
16 Þeir sem sjá þig stara á þig,þeir virða þig fyrir sér og segja:
‚Er þetta maðurinn sem lét jörðina skjálfaog konungsríkin riða,+
17 sem gerði heimsbyggðina að auðn,lagði borgirnar í rúst+og neitaði að sleppa föngum sínum?‘+
18 Konungar allra annarra þjóða,já, allir konungar þeirra, hlutu virðulega greftrun,hver í sinni gröf.*
19 En þér er fleygt án greftrunareins og fyrirlitnum sprota,*þakinn líkum þeirra sem felldir voru með sverðiog kastað í gryfju með grjóti.
Þú verður eins og fótum troðið hræ.
20 Þú verður ekki lagður í gröf með öðrum konungumþví að þú lagðir land þitt í rústog drapst þína eigin þjóð.
Afkomendur illvirkja verða aldrei framar nefndir á nafn.
21 Búið aftökustað fyrir syni hansvegna sektar forfeðra þeirrasvo að þeir rísi ekki upp, leggi undir sig jörðinaog fylli landið borgum sínum.“
22 „Ég rís gegn þeim,“+ segir Jehóva hersveitanna.
„Og ég afmái úr Babýlon nafn, eftirlifendur, afkomendur og ætt,“+ segir Jehóva.
23 „Ég geri hana að heimkynni puntsvína og að mýrlendi, og ég sópa henni burt með sópi eyðingarinnar,“+ segir Jehóva hersveitanna.
24 Jehóva hersveitanna hefur svarið:
„Það sem ég hef ætlað mér verðurog það sem ég hef ákveðið nær fram að ganga.
25 Ég krem Assýringinn í landi mínuog treð hann niður á fjöllum mínum.+
Oki hans verður létt af fólki mínuog byrði hans tekin af herðum þess.“+
26 Þetta er sú ákvörðun sem bitnar á allri jörðinniog þetta er höndin sem er reidd gegn öllum þjóðum.
27 Jehóva hersveitanna hefur tekið ákvörðun,hver getur staðið í vegi fyrir henni?+
Hönd hans er reidd á loft,hver getur aftrað honum?+
28 Árið sem Akas konungur dó+ kom þessi yfirlýsing:
29 „Fagnið ekki, Filistear, enginn ykkar,þó að stafur þess sem sló ykkur hafi verið brotinnþví að af rót snáksins+ kemur eiturslanga+og afkvæmi hennar verður fljúgandi eldnaðra.*
30 Frumburðir hinna veikburða verða á beitog hinir fátæku leggjast óhultir til hvíldaren ég læt rót þína deyja úr hungriog það sem eftir er af þér verður drepið.+
31 Kveinaðu, hlið! Öskraðu, borg!
Allir íbúar þínir missa kjarkinn, Filistea,því að reykur kemur úr norðriog enginn dregst aftur úr fylkingum hans.“
32 Hverju eiga þeir að svara sendiboðum þjóðarinnar?
Að Jehóva hafi lagt grundvöll Síonar+og að hinir bágstöddu meðal fólks hans leiti skjóls þar.
Neðanmáls
^ Eða „veitir þeim hvíld“.
^ Eða „þrælahöldurunum“.
^ Á hebr. Sheol, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „geithafra“.
^ Á hebr. Sheol, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
^ Á hebr. Sheol, það er, sameiginleg gröf mannkyns. Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „sínu húsi“.
^ Eða „fyrirlitinni grein“.
^ Eða „eldsnögg eiturslanga“.

