Sálmur 92:1–15
Söngljóð fyrir hvíldardaginn.
92 Það er gott að þakka Jehóva+og syngja nafni þínu lof,* þú Hinn hæsti,
2 að boða tryggan kærleika þinn+ að morgniog trúfesti þína um nætur
3 við undirleik tístrengja hljóðfæris og lútu,við óm hljómfagurrar hörpu.+
4 Þú hefur glatt mig, Jehóva, með dáðum þínum,ég hrópa fagnandi yfir verkum handa þinna.
5 Hversu mikil eru verk þín, Jehóva,+hve djúpar hugsanir þínar!+
6 Enginn óskynsamur maður getur þekkt þær,enginn heimskingi getur skilið þetta:+
7 Þegar vondir menn spretta eins og illgresi*og allir afbrotamenn blómstraverður þeim útrýmt fyrir fullt og allt.+
8 En þú, Jehóva, ert upphafinn um eilífð.
9 Fagnaðu sigri yfir óvinum þínum, Jehóva,sjáðu hvernig óvinir þínir hverfaog öll illmenni tvístrast.+
10 En þú veitir mér styrk villinautsins,*ég mýki húð mína með nýrri olíu.+
11 Ég horfi sigurglaður á fjandmenn mína.+
Ég heyri að árásarmenn mínir séu fallnir.
12 En hinir réttlátu dafna eins og pálmatréog stækka eins og sedrustré í Líbanon.+
13 Þeir eru gróðursettir í húsi Jehóva,þeir blómstra í forgörðum Guðs okkar.+
14 Jafnvel á gamals aldri* dafna þeir+og eru þróttmiklir* og hraustir+
15 og boða að Jehóva sé réttlátur.
Hann er klettur minn+ og hjá honum er ekkert ranglæti.
Neðanmáls
^ Eða „lofa nafn þitt með tónlist“.
^ Eða „gras“.
^ Orðrétt „upphefur horn mitt eins og á villinauti“.
^ Eða „þegar hárið er gránað“.
^ Orðrétt „feitir“.