Sálmur 91:1–16
91 Sá sem býr í skjóli* Hins hæsta+dvelur í skugga Hins almáttuga.+
2 Ég segi við Jehóva: „Þú ert athvarf mitt og virki,+Guð minn sem ég treysti á.“+
3 Hann bjargar þér frá gildru fuglafangarans,frá banvænni drepsóttinni.
4 Hann skýlir* þér með flugfjöðrum sínumog undir vængjum hans leitarðu athvarfs.+
Trúfesti hans+ verður skjöldur*+ og varnarmúr.*
5 Þú þarft ekki að óttast ógnir næturinnar+né örina sem flýgur að degi,+
6 drepsóttina sem læðist í myrkrinuné eyðinguna sem geisar um hádegi.
7 Þúsund falla við hlið þérog tíu þúsund þér á hægri hönden það nær ekki til þín.+
8 Þú horfir aðeins á það,verður vitni að hvernig illum er refsað.*
9 Fyrst þú sagðir: „Jehóva er athvarf mitt,“hefurðu gert Hinn hæsta að bústað þínum.*+
10 Engar hörmungar koma yfir þig+og engin plága nálgast tjald þitt
11 því að hann skipar englum sínum+að gæta þín á öllum vegum þínum.+
12 Þeir munu bera þig á höndum sér+til að þú hrasir ekki um stein.+
13 Þú treður á ungljóni og kóbru,traðkar á fullvaxta ljóni og stórri slöngu.+
14 Guð sagði: „Ég bjarga honum+ þar sem hann elskar mig,*ég vernda hann því að hann þekkir* nafn mitt.+
15 Hann kallar á mig og ég svara honum.+
Ég verð með honum á erfiðum tímum.+
Ég bjarga honum og upphef hann.
16 Ég gef honum langa ævi+og læt hann sjá að ég bjarga.“+
Neðanmáls
^ Eða „á leynistað“.
^ Eða „hindrar aðgang að“.
^ Eða „stór skjöldur“.
^ Eða „virkisgarður“.
^ Orðrétt „endurgoldið“.
^ Eða hugsanl. „virki þínu; athvarfi þínu“.
^ Orðrétt „hann hefur tengst mér“.
^ Eða „viðurkennir“.