Sálmur 77:1–20
Til tónlistarstjórans. Jedútún.* Söngljóð eftir Asaf.+
77 Ég hrópa hátt til Guðs,ég hrópa til Guðs og hann heyrir til mín.+
2 Í neyð minni leita ég Jehóva.+
Alla nóttina teygi ég hendurnar til hans.*
Ég fæ enga huggun.
3 Ég andvarpa þegar ég hugsa til Guðs,+ég er kvíðinn og máttvana.+ (Sela)
4 Þú leyfir mér ekki að loka augunum,mér er órótt og ég kem ekki upp orði.
5 Mér er hugsað til fyrri tíma,+til löngu liðinna ára.
6 Ég man eftir lagi mínu* um nætur,+ég hugleiði í hjarta mér,+leita skilnings og svara.
7 Hefur Jehóva hafnað okkur um eilífð?+
Mun hann aldrei framar sýna okkur velvild?+
8 Er tryggur kærleikur hans horfinn fyrir fullt og allt?
Verða loforð hans að engu um ókomnar kynslóðir?
9 Hefur Guð gleymt að sýna velvild,+eða er miskunn hans horfin vegna reiði hans? (Sela)
10 Þarf ég sífellt að segja: „Það veldur mér hugarkvöl*+að Hinn hæsti er ekki lengur með* okkur“?
11 Ég ætla að muna eftir verkum Jah,minnast dásemdarverka þinna til forna.
12 Ég hugsa um allt sem þú hefur gertog hugleiði afrek þín.+
13 Guð, vegir þínir eru heilagir.
Hvaða guð er eins mikill og þú?+
14 Þú ert hinn sanni Guð sem vinnur stórkostleg verk.+
Þú hefur birt þjóðunum mátt þinn.+
15 Þú bjargaðir* fólki þínu með mætti þínum,*+sonum Jakobs og Jósefs. (Sela)
16 Vötnin sáu þig, Guð,vötnin sáu þig og skulfu+og djúpin skelfdust.
17 Vatn streymdi úr skýjunum,þrumur drundu af himniog örvar þínar þutu í allar áttir.+
18 Þrumur þínar+ dundu eins og gnýr af vagnhjólum,eldingar lýstu upp heimsbyggðina,*+jörðin nötraði og skalf.+
19 Leið þín lá gegnum hafið,+vegur þinn gegnum mörg vötnen fótspor þín urðu ekki rakin.
20 Þú leiddir fólk þitt eins og hjörð+sem Móse og Aron gættu.*+
Neðanmáls
^ Sjá orðaskýringar.
^ Eða „út hendurnar og þær dofna ekki“.
^ Eða „strengjaleik mínum“.
^ Orðrétt „að hægri hönd Hins hæsta hefur breyst gagnvart“.
^ Eða „Það stingur mig“.
^ Orðrétt „leystir“.
^ Orðrétt „hendi þinni“.
^ Eða „frjósamt landið“.
^ Orðrétt „með hendi Móse og Arons“.