Sálmur 71:1–24

  • Trúartraust hinna öldruðu

    • ‚Ég hef treyst Guði frá unga aldri‘ (5)

    • „Þegar þróttur minn þrýtur“ (9)

    • ‚Guð hefur kennt mér frá unga aldri‘ (17)

71  Hjá þér, Jehóva, hef ég leitað athvarfs. Láttu mig aldrei verða mér til skammar.+   Frelsaðu mig og hjálpaðu mér því að þú ert réttlátur. Beygðu þig niður og hlustaðu,* bjargaðu mér.+   Vertu mér klettavirkisem ég get alltaf flúið í. Sendu einhvern til að bjarga mérþví að þú ert bjarg mitt og vígi.+   Guð minn, frelsaðu mig úr höndum vondra manna,+úr greipum illskeyttra kúgara,   því að þú ert von mín, alvaldur Drottinn Jehóva,ég hef treyst þér* frá unga aldri.+   Ég hef reitt mig á þig frá því að ég fæddist,þú tókst á móti mér úr móðurkviði.+ Ég lofa þig öllum stundum.   Í augum margra er ég sem unduren þú ert mér öruggt athvarf.   Munnur minn er fullur af lofgjörð um þig,+allan daginn segi ég frá dýrð þinni.   Útskúfaðu mér ekki í elli minni,+yfirgefðu mig ekki þegar þróttur minn þrýtur.+ 10  Óvinir mínir tala um migog þeir sem sækjast eftir lífi mínu leggja á ráðin gegn mér+ 11  og segja: „Guð hefur yfirgefið hann. Eltið hann og grípið hann því að enginn bjargar honum.“+ 12  Guð, vertu ekki fjarlægur,Guð minn, hjálpaðu mér fljótt.+ 13  Láttu þá sem standa gegn mérfarast með skömm,+þá sem vilja mér illtklæðast niðurlægingu og smán.+ 14  En ég vil halda áfram að bíðaog lofa þig sem aldrei fyrr. 15  Munnur minn segir frá réttlæti þínu,+allan daginn frá björgunarverkum þínumþótt þau séu fleiri en ég get skilið.*+ 16  Ég vil fara og kunngera máttarverk þín,alvaldur Drottinn Jehóva,segja frá réttlæti þínu, þínu og einskis annars. 17  Guð, þú hefur kennt mér frá unga aldri+og enn þann dag í dag boða ég dásamleg verk þín.+ 18  Yfirgefðu mig ekki, Guð, þegar ég er orðinn gamall og gráhærður.+ Þá get ég sagt komandi kynslóð frá styrk* þínumog öllum sem enn eru ófæddir frá mætti þínum.+ 19  Réttlæti þitt, Guð, nær til himins,+þú hefur gert stórkostlega hluti,Guð, hver er sem þú?+ 20  Þú hefur látið mig þola miklar raunir og erfiðleika+en lífgaðu mig nú við,dragðu mig upp úr djúpi jarðar.+ 21  Láttu mig endurheimta mína fyrri reisn,veittu mér vernd og huggun. 22  Þá mun ég lofa þig með strengjaleik, Guð minn,fyrir trúfesti þína,+lofsyngja þig við hörpuleik,*þú Hinn heilagi Ísraels. 23  Varir mínar skulu hrópa af gleði þegar ég syng þér lof+því að þú hefur bjargað lífi mínu.*+ 24  Tunga mín mun tala um* réttlæti þitt allan daginn+því að þeir sem óska mér ógæfu hljóta skömm og niðurlægingu.+

Neðanmáls

Orðrétt „Hneigðu eyra þitt til mín“.
Eða „þú hefur verið traust mitt“.
Eða „talið“.
Orðrétt „armi“.
Eða „leika á hörpu þér til lofs“.
Eða „endurleyst sál mína“.
Eða „Ég mun hugleiða“.