Sálmur 65:1–13
Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð.
65 Guð, lofsöngur bíður þín á Síon,+við viljum efna heit okkar við þig.+
2 Þú sem heyrir bænir, til þín kemur alls konar fólk.+
3 Syndir mínar bera mig ofurliði+en þú fyrirgefur* afbrot okkar.+
4 Sá er hamingjusamur sem þú velur og lætur nálgast þig,hann fær að búa í forgörðum þínum.+
Við fáum að seðjast af öllu því góða í húsi þínu,+þínu heilaga musteri.*+
5 Þú svarar okkur með stórfenglegum réttlætisverkum,+Guð okkar og frelsari.
Fólk treystir á þig við endimörk jarðar+og á fjarlægum ströndum.
6 Þú* grundvallaðir fjöllin með krafti þínum,þú* ert klæddur mætti.+
7 Þú* lægir ólgandi höfin,+drunurnar í öldunum og óróa þjóðanna.+
8 Íbúar afskekktra svæða fyllast lotningu þegar þeir sjá tákn þín,+frá austri til vesturs* færðu fólk til að hrópa af gleði.
9 Þú annast jörðina,gerir hana frjósama og gjöfula.+
Lækur Guðs er bakkafullur,þú sérð mönnunum fyrir korni+því að þannig gerðir þú jörðina úr garði.
10 Þú gegnbleytir plógför hennar og jafnar út plægðan akurinn,*þú mýkir hann með regnskúrum og blessar það sem á honum sprettur.+
11 Þú kórónar árið með góðvild þinni,spor þín fljóta í gæðum.*+
12 Beitilönd óbyggðanna drjúpa af vatni+og hæðirnar eru klæddar fögnuði.+
13 Hagarnir eru þaktir hjörðumog dalirnir* huldir korni.+
Allt hrópar af fögnuði og syngur.+
Neðanmáls
^ Orðrétt „breiðir yfir“.
^ Eða „helgidómi þínum“.
^ Orðrétt „hann“.
^ Orðrétt „Hann“.
^ Orðrétt „Hann“.
^ Orðrétt „frá sólarupprás til sólseturs“.
^ Eða „plóggarða hennar“.
^ Orðrétt „drjúpa af feiti“.
^ Eða „slétturnar“.