Sálmur 53:1–6

  • Heimskingjanum lýst

    • „Jehóva er ekki til“ (1)

    • „Enginn gerir það sem er gott“ (3)

Til tónlistarstjórans. Í makalat-stíl.* Maskíl* eftir Davíð. 53  Heimskinginn segir í hjarta sínu: „Jehóva er ekki til.“+ Ranglætisverk þeirra eru spillt og andstyggileg,enginn gerir það sem er gott.+   En Guð lítur á mennina af himni ofan+til að sjá hvort nokkur sé skynsamur, hvort nokkur leiti Jehóva.+   Þeir hafa allir vikið af réttri braut,þeir eru allir spilltir. Enginn gerir það sem er gott,ekki einn einasti.+   Skilja þeir ekki neitt, þessir illvirkjar? Þeir gleypa í sig fólk mitt eins og brauðog ákalla ekki Jehóva.+   En þeir verða skelfingu lostnir,hræddari en nokkru sinni fyrr*því að Guð tvístrar beinum þeirra sem ráðast gegn þér.* Þú niðurlægir þá því að Jehóva hefur hafnað þeim.   Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon!+ Jakob gleðjist, Ísrael fagniþegar Jehóva flytur herleitt fólk sitt aftur heim.

Neðanmáls

Eða hugsanl. „óttaslegnir þótt ekkert sé að óttast“.
Orðrétt „setja upp herbúðir gegn þér“.