Sálmur 43:1–5
43 Dæmdu mig, Guð,+verðu málstað minn+ gegn ótrúrri þjóð,bjargaðu mér frá hinum svikulu og ranglátu
2 því að þú ert Guð minn, varnarvirki mitt.+
Hvers vegna hefurðu útskúfað mér?
Hvers vegna þarf ég að ganga um sorgmæddur, kúgaður af óvinum mínum?+
3 Sendu ljós þitt og sannleika.+
Þau skulu vísa mér veginn,+leiða mig til þíns heilaga fjalls og þinnar stórfenglegu tjaldbúðar.+
4 Þá geng ég að altari Guðs,+til Guðs sem er mín mesta gleði,og lofa þig með hörpuleik,+ ó Guð, þú Guð minn.
5 Hvers vegna örvænti ég?
Hvers vegna finn ég enga ró innra með mér?
Ég vil bíða eftir Guði+því að ég fæ að lofa hann, minn mikla frelsara og Guð.+