Sálmur 4:1–8
Til tónlistarstjórans. Fyrir strengjahljóðfæri. Söngljóð eftir Davíð.
4 Svaraðu mér þegar ég hrópa, minn réttláti Guð,+búðu mér leið út úr* erfiðleikum mínum.
Vertu mér góður og heyrðu bæn mína.
2 Þið menn, hve lengi ætlið þið að ráðast að reisn minni og niðurlægja mig?
Hve lengi ætlið þið að elska hið fánýta og eltast við blekkingar? (Sela)
3 Þið skuluð vita að Jehóva gerir vel við þann* sem er honum trúr.
Jehóva heyrir þegar ég hrópa til hans.
4 Reiðist en syndgið ekki.+
Hugleiðið það uppi í rúmi og verið hljóðir. (Sela)
5 Færið fórnir með hreinu hjartaog treystið Jehóva.+
6 Margir segja: „Hver mun gera okkur gott?“
Láttu auglit þitt lýsa yfir okkur, Jehóva.+
7 Þú hefur fyllt hjarta mitt gleði,meiri en þeirra sem uppskera ríkulega af korni og nýju víni.
8 Ég leggst og sef vært+því að þú einn, Jehóva, lætur mig búa við öryggi.+