Sálmur 26:1–12

  • Vegur ráðvendninnar

    • „Rannsakaðu mig, Jehóva“ (2)

    • Að forðast slæman félagsskap (4, 5)

    • ‚Ég geng í kringum altari Guðs‘ (6)

Eftir Davíð. 26  Dæmdu mig, Jehóva, því að ég er ráðvandur,+ég hef lagt traust mitt á Jehóva og haggast ekki.+   Rannsakaðu mig, Jehóva, og reyndu mig,hreinsaðu hug minn* og hjarta+   því að ég hef tryggan kærleika þinn alltaf fyrir augumog geng í sannleika þínum.+   Ég umgengst ekki* svikula menn+og forðast þá sem fela sitt sanna eðli.*   Ég hata félagsskap þeirra sem gera illt+og vil ekki umgangast* vonda menn.+   Ég þvæ hendur mínar í sakleysiog geng í kringum altari þitt, Jehóva,   til að láta þakklæti mitt hljóma+og segja frá öllum dásemdarverkum þínum.   Jehóva, ég elska húsið þar sem þú býrð,+staðinn þar sem dýrð þín er.+   Afmáðu ekki líf mitt með syndurum,+láttu mig ekki deyja með ofbeldismönnum,* 10  þeim sem hegða sér svívirðilegaog hafa hægri höndina fulla af mútufé. 11  En ég held fast í ráðvendni mína. Bjargaðu mér og vertu mér góður. 12  Fótur minn stendur á jafnsléttu,+ég vil lofa Jehóva í stórum söfnuði.+

Neðanmáls

Eða „innstu tilfinningar mínar“. Orðrétt „nýru mín“.
Orðrétt „sit ekki hjá“.
Eða „blanda ekki geði við hræsnara“.
Orðrétt „sitja hjá“.
Eða „þeim sem úthella blóði“.