Sálmur 21:1–13

  • Konungurinn treystir Jehóva og hlýtur blessun

    • Konungurinn hlýtur langa ævi (4)

    • Óvinir Guðs sigraðir (8–12)

Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð. 21  Konungurinn gleðst yfir styrk þínum, Jehóva,+fagnar innilega yfir hjálp þinni.+   Þú gafst honum það sem hjarta hans þráði,+neitaðir honum ekki um það sem varir hans báðu um. (Sela)   Þú kemur á móti honum til að blessa hann ríkulega,setur kórónu úr skíragulli á höfuð hans.+   Hann bað þig um líf og þú gafst honum það,+langa ævi, já, eilíft líf.   Dýrð hans er mikil því að þú bjargaðir honum,+þú veitir honum vegsemd og tign.   Þú blessar hann að eilífu,+nærvera þín* veitir honum gleði.+   Konungurinn treystir Jehóva,+hann hrasar aldrei því að Hinn hæsti sýnir honum tryggan kærleika.+   Hönd þín nær öllum óvinum þínum,hægri hönd þín nær þeim sem hata þig.   Þú gerir þá að glóandi eldsofni þegar þú birtist þeim á tilsettum tíma. Jehóva gereyðir þeim í reiði sinni og eldurinn gleypir þá.+ 10  Þú afmáir afkvæmi* þeirra af jörðinni,afkomendur þeirra úr hópi mannanna. 11  Þeir hafa lagt á ráðin gegn þér,+bruggað launráð sem heppnast þó ekki+ 12  því að þú rekur þá á flótta+þegar þú miðar boganum á þá. 13  Rístu upp, Jehóva, og sýndu styrk þinn. Við lofum mátt þinn í söng.*

Neðanmáls

Orðrétt „auglit þitt“.
Orðrétt „ávöxt“.
Orðrétt „með söng og tónlist“.