Sálmur 140:1–13

  • Jehóva er máttugur frelsari

    • Illir menn eru eins og nöðrur (3)

    • Ofbeldismenn munu falla (11)

Til tónlistarstjórans. Söngljóð eftir Davíð. 140  Bjargaðu mér, Jehóva, frá illum mönnum,verndaðu mig fyrir ofbeldismönnum,+   þeim sem upphugsa illt í hjarta sér+og valda sífellt átökum.   Þeir brýna tungu sína eins og naðra,+höggormseitur er innan vara þeirra.+ (Sela)   Verndaðu mig, Jehóva, fyrir höndum hinna illu,+verðu mig fyrir ofbeldismönnum,þeim sem ætla að bregða fæti fyrir mig.   Hrokafullir menn leggja gildru fyrir mig,þeir strengja net meðfram veginum,+þeir leggja snörur fyrir mig.+ (Sela)   Ég segi við Jehóva: „Þú ert Guð minn. Hlustaðu, Jehóva, þegar ég hrópa á hjálp.“+   Jehóva, alvaldur Drottinn, máttugur frelsari minn,þú skýlir höfði mínu á orrustudeginum.+   Jehóva, uppfylltu ekki óskir hinna illu,láttu ekki ráðabrugg þeirra heppnast svo að þeir verði sjálfumglaðir.+ (Sela)   Megi það illa sem menn í kringum mig segjakoma sjálfum þeim í koll.+ 10  Glóandi kolum rigni yfir þá.+ Verði þeim varpað í eldinn,í djúpar gryfjur*+ svo að þeir standi aldrei upp framar. 11  Rógberinn finni hvergi samastað á jörðinni,*+hið illa elti uppi ofbeldismenn og felli þá. 12  Ég veit að Jehóva mun verja hina bágstödduog láta fátæka ná rétti sínum.+ 13  Já, hinir réttlátu skulu lofa nafn þitt,hinir heiðvirðu búa hjá þér.*+

Neðanmáls

Eða „í vatnsgryfjur“.
Eða „í landinu“.
Eða „frammi fyrir augliti þínu“.