Sálmur 136:1–26

  • Tryggur kærleikur Jehóva varir að eilífu

    • Himinn og jörð sköpuð af miklu hugviti (5, 6)

    • Faraó dó í Rauðahafi (15)

    • Guð man eftir hinum niðurdregnu (23)

    • Fæða handa öllu sem lifir (25)

136  Þakkið Jehóva því að hann er góður.+ Tryggur kærleikur hans varir að eilífu.+   Þakkið Guði guðanna+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.   Þakkið Drottni drottnannaþví að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.   Hann einn vinnur mikil undraverk+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.+   Hann skapaði himininn af miklu hugviti*+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.   Hann breiddi út jörðina yfir vötnin+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.   Hann skapaði ljósin miklu+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu,   sólina til að ráða yfir deginum+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu,   tunglið og stjörnurnar til að ráða yfir nóttinni+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 10  Hann banaði frumburðum Egypta+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 11  Hann leiddi Ísrael burt frá þeim,+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu, 12  með sterkri hendi+ og útréttum handleggþví að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 13  Hann klauf Rauðahafið í tvennt+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 14  Hann lét Ísraelsmenn ganga í gegnum það+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 15  Hann kastaði faraó og her hans í Rauðahafið+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 16  Hann leiddi fólk sitt um óbyggðirnar+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 17  Hann felldi mikla konunga+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 18  Hann drap volduga konungaþví að tryggur kærleikur hans varir að eilífu, 19  Síhon+ konung Amorítaþví að tryggur kærleikur hans varir að eilífu 20  og Óg,+ konung í Basan,því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 21  Hann gaf land þeirra sem arf+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu, 22  erfðaland handa þjóni sínum, Ísrael,því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 23  Hann mundi eftir okkur þegar við vorum langt niðri+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.+ 24  Hann bjargaði okkur margsinnis frá andstæðingum okkar+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 25  Hann gefur fæðu öllu sem lifir+því að tryggur kærleikur hans varir að eilífu. 26  Þakkið Guði himnannaþví að tryggur kærleikur hans varir að eilífu.

Neðanmáls

Eða „af visku“.