Sálmur 132:1–18

  • Davíð og Síon valin

    • „Hafnaðu ekki þínum smurða“ (10)

    • Prestar Síonar klæðast frelsun (16)

Uppgönguljóð. 132  Jehóva, mundu eftir Davíðog öllum þjáningum hans,+   hvernig hann sór Jehóva eiðog hét Hinum volduga Jakobs:+   „Ég fer ekki inn í tjald mitt, í hús mitt,+ég leggst ekki til hvíldar, í rúm mitt,   ég unni ekki augum mínum svefnsné augnlokum mínum að blunda   fyrr en ég finn stað handa Jehóva,fagran bústað* handa Hinum volduga Jakobs.“+   Við fréttum af henni* í Efrata,+við fundum hana í skóglendinu.+   Göngum inn í bústað* hans,+föllum fram við skemil hans.+   Gakktu fram, Jehóva, og komdu til hvíldarstaðar þíns,+þú og örk máttar þíns.+   Prestar þínir klæðist réttlætinuog þínir trúföstu hrópi af gleði. 10  Hafnaðu ekki þínum smurða,vegna Davíðs þjóns þíns.+ 11  Jehóva hefur svarið Davíðog hann gengur ekki á bak orða sinna: „Afkomanda þinn* set ég í hásæti þitt.+ 12  Ef synir þínir halda sáttmála minnog áminningar sem ég kenni þeim+skulu synir þeirra líkasitja í hásæti þínu að eilífu.“+ 13  Jehóva hefur valið Síon,+þar þráir hann að eiga bústað sinn:+ 14  „Þetta er hvíldarstaður minn að eilífu,hér mun ég búa,+ það þrái ég. 15  Ég mun blessa borgina með matarbirgðumog metta fátæklinga hennar með brauði.+ 16  Presta hennar klæði ég frelsun+og hinir trúföstu munu hrópa af gleði.+ 17  Þar læt ég Davíð eflast,*ég hef lampa tilbúinn handa mínum smurða.+ 18  Ég klæði óvini hans skömmen kórónan á höfði hans mun ljóma.“+

Neðanmáls

Eða „stórfenglega tjaldbúð“.
Vísar greinilega til arkarinnar.
Eða „stórfenglega tjaldbúð“.
Orðrétt „Mann af ávexti kviðar þíns“.
Orðrétt „horn Davíðs vaxa“.