Sálmur 121:1–8
Uppgönguljóð.
121 Ég horfi til fjallanna.+
Hvaðan fæ ég hjálp?
2 Hjálp mín kemur frá Jehóva,+skapara himins og jarðar.
3 Hann lætur þig aldrei missa fótanna.+
Hann sem verndar þig dottar aldrei.
4 Nei, hann dottar ekki né sofnar,hann sem verndar Ísrael.+
5 Jehóva verndar þig.
Jehóva er skugginn+ þér til hægri handar.+
6 Sólin vinnur þér ekki mein að degi+né tunglið að nóttu.+
7 Jehóva verndar þig gegn öllu illu.+
Hann verndar líf þitt.+
8 Jehóva verndar þig í öllu sem þú gerir*héðan í frá og að eilífu.
Neðanmáls
^ Orðrétt „þegar þú gengur út og kemur inn“.