Orðskviðirnir 17:1–28
17 Betri er þurr brauðbiti þar sem friður ríkir*+en fullt hús af veislumat* með deilum.+
2 Vitur þjónn er settur yfir son sem er til skammarog fær arf með bræðrum hans.
3 Bræðslupotturinn er fyrir silfrið og ofninn fyrir gullið+en Jehóva kannar hjörtun.+
4 Vondur maður gefur gaum að skaðlegum orðumog lygarinn hlustar á illgjarna tungu.+
5 Sá sem hæðist að hinum fátæka vanvirðir þann sem skapaði hann+og sá sem gleðst yfir óförum annarra sleppur ekki við refsingu.+
6 Barnabörnin eru kóróna hinna öldruðuog feðurnir* stolt sona* sinna.
7 Heiðarleg* orð hæfa ekki heimskingja+og hvað þá lygin valdhafa.*+
8 Gjöf er eins og eðalsteinn fyrir þann sem á hana,*+hún færir honum velgengni hvert sem hann fer.+
9 Sá sem fyrirgefur* mistök stuðlar að kærleika+en sá sem staglast á þeim veldur vinslitum.+
10 Hygginn maður hefur meira gagn af ávítum+en heimskinginn af hundrað höggum.+
11 Vondur maður er sífellt í uppreisnarhugen miskunnarlaus sendiboði kemur og refsar honum.+
12 Betra er að mæta birnu rænda húnum sínumen heimskingja í fíflsku hans.+
13 Ef einhver launar gott með illuhverfur ógæfan aldrei frá húsi hans.+
14 Að kveikja deilu er eins og að opna flóðgátt.*
Forðaðu þér áður en rifrildið brýst út.+
15 Sá sem sýknar hinn illa og sá sem fordæmir hinn réttláta+eru báðir andstyggð í augum Jehóva.
16 Hvað gagnast það heimskingjanum að hafa tök á að afla sér viskuef hjarta hans er ekki móttækilegt?*+
17 Sannur vinur elskar alltaf+og er sem bróðir* á raunastund.+
18 Óskynsamur maður gerir samkomulag með handabandiog ábyrgist lán í viðurvist náunga síns.+
19 Sá sem elskar þrætur elskar afglöp.+
Sá sem gerir dyr sínar háar býður hættunni heim.+
20 Sá sem er spilltur í hjarta á ekkert gott í vændumog sá sem er svikull í tali steypir sér í glötun.+
21 Þeim sem getur af sér heimskt barn er það mikil raunog faðir bjánans gleðst ekki.+
22 Glatt hjarta er gott meðal*+en depurð dregur úr manni allan þrótt.*+
23 Vondur maður þiggur mútur með leyndtil að hindra framgang réttvísinnar.+
24 Skynsamur maður hefur viskuna alltaf fyrir sjónumen augu hins heimska reika um alla jörðina.+
25 Heimskur sonur hryggir föður sinnog veldur móður sinni hugarangri.+
26 Að refsa* réttlátum manni er ekki gottog að hýða heiðursmenn er rangt.
27 Vitur maður gætir orða sinna+og skynsamur maður heldur ró sinni.+
28 Jafnvel heimskingi er talinn vitur ef hann þegirog skynsamur ef hann lokar munninum.
Neðanmáls
^ Orðrétt „sláturfórnum“.
^ Eða „í næði“.
^ Eða „foreldrarnir“.
^ Eða „barna“.
^ Eða „Fáguð“.
^ Eða „göfugum manni“.
^ Eða „steinn sem færir eiganda sínum blessun“.
^ Orðrétt „breiðir yfir“.
^ Eða „rjúfa stíflu“.
^ Eða „ef hann skortir skynsemi“.
^ Eða „bróðir fæddur til að hjálpa“.
^ Eða „góð heilsubót“.
^ Eða „tærir upp beinin“.
^ Eða „sekta“.