Orðskviðirnir 14:1–35
14 Vitur kona byggir upp heimili sitt+en hin heimska rífur það niður með berum höndum.
2 Sá sem fetar beinar brautir óttast Jehóvaen sá sem fer hlykkjóttar leiðir fyrirlítur hann.
3 Hrokatal heimskingjans er eins og högg með vendien varir hinna vitru vernda þá.
4 Jatan er hrein þar sem engir nautgripir eruen með öflugum uxa verður uppskeran mikil.
5 Áreiðanlegt vitni lýgur ekkien ljúgvitni fer með eintómar lygar.+
6 Háðgjarn maður leitar visku en finnur enga.
En þekking er auðfengin þeim sem hefur skilning.+
7 Haltu þig fjarri heimskum manniþví að engin þekking kemur úr munni hans.+
8 Með visku skilur hinn skynsami hvert leið hans ligguren hinir heimsku láta blekkjast af* fávisku sinni.+
9 Heimskingjar hlæja að synd sinni*+en hinir réttlátu eru sáttfúsir.*
10 Hjartað eitt þekkir kvöl sínaog enginn annar getur átt þátt í gleði þess.
11 Húsi hinna illu verður eytt+en tjald réttlátra blómstrar.
12 Vegur virðist kannski réttur+en liggur samt til dauða.+
13 Hjartað finnur stundum til þótt hlegið séog gleði getur endað í sorg.
14 Sá sem er rangsnúinn í hjarta fær makleg málagjöld+en góður maður hlýtur umbun fyrir verk sín.+
15 Einfaldur maður trúir ölluen skynsamur maður íhugar hvert skref.+
16 Vitur maður er varkár og forðast hið illaen heimskinginn er ógætinn* og öruggur með sig.
17 Reiðigjarn maður hegðar sér heimskulega+en sá sem hugsar sig um er hataður.
18 Hinir trúgjörnu erfa heimskuen hinir skynsömu verða krýndir þekkingu.+
19 Vont fólk verður að lúta hinum góðuog illir menn krjúpa við dyr réttlátra.
20 Hinn fátæki er jafnvel hataður af náunga sínum+en hinn ríki á marga vini.+
21 Sá sem fyrirlítur náunga sinn syndgaren sá sem sýnir bágstöddum samkennd er hamingjusamur.+
22 Þeir sem hafa ill áform villast af leiðen þeir sem vilja gera gott uppskera góðvild* og traust.+
23 Af allri erfiðisvinnu hlýst ávinninguren orðin ein leiða til skorts.+
24 Auður hinna vitru er kóróna þeirraen heimska hinna fávísu er og verður heimska.+
25 Heiðarlegt vitni bjargar lífien svikarinn fer með eintómar lygar.
26 Sá sem óttast Jehóva treystir honum í einu og öllu+og börn hans munu eiga sér athvarf.+
27 Að óttast Jehóva er lífsbrunnurog forðar frá snörum dauðans.
28 Fjölmenn þjóð er konungi til prýði+en valdhafi fellur ef þegnana vantar.
29 Sá sem er seinn til reiði sýnir mikla skynsemi+en hinn bráðláti lætur heimsku sína í ljós.+
30 Hugarró er líkamanum líf*en öfund tærir beinin.+
31 Sá sem svindlar á hinum bágstadda vanvirðir þann sem skapaði hann+en sá sem sýnir fátækum samkennd heiðrar hann.+
32 Hinn illi fellur um eigin illskuen ráðvendni hins réttláta er honum athvarf.+
33 Viskan hefur hljótt um sig í hjarta hins skynsama+en hjá hinum heimsku lætur hún sífellt vita af sér.
34 Réttlæti er þjóð til sóma+en synd er fólkinu til skammar.
35 Vitur þjónn ávinnur sér hylli konungs+en sá sem hegðar sér skammarlega fær að kenna á reiði hans.+

