Opinberun Jóhannesar 4:1–11
4 Eftir þetta sá ég opnar dyr á himni og fyrsta röddin sem ég heyrði tala við mig hljómaði eins og lúður. Hún sagði: „Komdu hingað upp og ég skal sýna þér það sem á að gerast.“
2 Um leið kom andinn yfir mig og ég sá hásæti sem stóð á himni og einhver sat í hásætinu.+
3 Hann sem sat þar geislaði eins og jaspissteinn+ og karneól,* og hringinn í kringum hásætið var regnbogi sem var eins og smaragður að sjá.+
4 Í kringum hásætið voru 24 hásæti og í þeim sátu 24 öldungar+ klæddir hvítum fötum og með gullkórónur á höfði.
5 Út frá hásætinu gengu eldingar,+ raddir og þrumur+ heyrðust og sjö blys loguðu fyrir framan það en þau tákna sjö anda Guðs.+
6 Fyrir framan hásætið var eitthvað sem leit út eins og glerhaf+ og líktist kristal.
Í miðjunni, þar sem hásætið var,* og kringum hásætið voru fjórar lifandi verur+ alsettar augum í bak og fyrir.
7 Fyrsta lifandi veran líktist ljóni,+ önnur veran líktist ungnauti,+ andlit þriðju verunnar+ var eins og mannsandlit og fjórða veran+ var eins og örn á flugi.+
8 Lifandi verurnar fjórar höfðu hver um sig sex vængi sem voru alsettir augum að ofan og neðan.+ Þær segja stöðugt, bæði dag og nótt: „Heilagur, heilagur, heilagur er Jehóva*+ Guð, Hinn almáttugi, hann sem var, sem er og kemur.“+
9 Í hvert sinn sem lifandi verurnar upphefja, heiðra og þakka honum sem situr í hásætinu og lifir um alla eilífð+
10 falla öldungarnir 24+ fram fyrir honum sem situr í hásætinu og tilbiðja hann sem lifir um alla eilífð. Þeir kasta kórónum sínum að hásætinu og segja:
11 „Jehóva* Guð okkar, þú ert þess verðugur að fá dýrðina,+ heiðurinn+ og máttinn+ því að þú skapaðir allt+ og að vilja þínum varð það til og var skapað.“
Neðanmáls
^ Eða „sardissteinn; rauður gimsteinn“.
^ Eða „Fyrir miðju hásætinu“.
^ Sjá viðauka A5.
^ Sjá viðauka A5.

