Míka 5:1–15
5 „Nú ristirðu hörund þitt,þú dóttir sem ráðist er á,óvinirnir hafa gert umsátur um okkur.+
Þeir slá dómara Ísraels á kinnina+ með staf.
2 Og þú, Betlehem Efrata,+sem ert of lítil til að teljast meðal borga* Júda,frá þér læt ég koma stjórnanda í Ísrael.+
Hann er af ævafornum uppruna, frá löngu liðinni tíð.
3 Þeir verða yfirgefnirþar til sú sem á að fæða hefur fætt.
Þeir sem eftir eru af bræðrum hans munu snúa aftur til Ísraelsmanna.
4 Hann kemur fram sem hirðir í krafti Jehóva,+í háleitu nafni Jehóva Guðs síns.
Þeir munu búa við öryggi+því að þá verður öllum jarðarbúum ljóst hve mikill hann er.+
5 Hann kemur á friði.+
Ef Assýringurinn ræðst inn í landið og brýst inn í virkisturna okkar+teflum við gegn honum sjö hirðum, já, átta mönnum sem eru höfðingjar.*
6 Þeir munu refsa* Assýríu með sverði+og landi Nimrods+ þar sem farið er inn í það.
Hann bjargar okkur úr höndum Assýringsins+þegar hann ræðst inn í landið og fótumtreður svæði okkar.
7 Þeir sem eftir eru af ætt Jakobs verða meðal margra þjóðflokkaeins og dögg frá Jehóva,eins og regnskúrir á gróðurinnsem eru óháðar mönnumog bíða ekki eftir þeim.
8 Þeir sem eftir eru af ætt Jakobs verða meðal þjóðanna,innan um marga þjóðflokka,eins og ljón meðal skógardýra,eins og ungljón í sauðahjörðsem ræðst á bráðina og slítur hana í sundurog enginn getur bjargað henni.
9 Þú lyftir hendinni sigri hrósandi yfir andstæðingum þínumog allir óvinir þínir verða afmáðir.“
10 „Þann dag,“ segir Jehóva,„útrými ég hestum þínum og eyði vögnunum.
11 Ég legg borgir lands þíns í eyðiog ríf niður öll varnarvirki þín.
12 Ég bind enda á særingar þínarog enginn sem stundar galdra verður hjá þér framar.+
13 Ég eyðilegg skurðgoð þín og súlurog þú hættir að falla fram fyrir verki handa þinna.+
14 Ég ríf upp helgistólpa* þína+og legg borgir þínar í rúst.
15 Í reiði og bræði kem ég fram hefndumá þjóðunum sem hlýddu mér ekki.“
Neðanmáls
^ Eða „ættflokka“. Orðrétt „þúsunda“.
^ Eða „leiðtogar“.
^ Orðrétt „gæta“.
^ Sjá orðaskýringar.