Bréfið til Kólossumanna 2:1–23
2 Ég vil að þið vitið hve mikið ég legg á mig vegna ykkar og þeirra sem eru í Laódíkeu+ og allra þeirra sem hafa ekki séð mig augliti til auglitis.
2 Ég geri það til að hughreysta alla+ svo að þeir verði sameinaðir í kærleika,+ eignist þá auðlegð sem fæst með öruggri vissu og skilningi og kynnist til hlítar heilögum leyndardómi Guðs, það er að segja Kristi.+
3 Allir fjársjóðir viskunnar og þekkingarinnar eru fólgnir í honum.+
4 Þetta segi ég til þess að enginn blekki ykkur með villandi rökum.
5 Þótt ég sé fjarverandi er ég með ykkur í anda og gleðst yfir því að góð regla+ ríkir hjá ykkur og að þið eruð staðföst í trúnni á Krist.+
6 Þið hafið tekið á móti Kristi Jesú Drottni okkar og nú skuluð þið halda áfram að ganga með honum.
7 Verið rótföst, byggð á honum+ og stöðug í trúnni+ eins og ykkur var kennt. Verið innilega þakklát.+
8 Gætið þess að enginn fjötri ykkur* með heimspeki og innantómum blekkingum+ sem byggjast á erfðavenjum manna og hugmyndafræði heimsins en ekki á Kristi.
9 Það er í honum sem eiginleikar Guðs birtast að fullu.*+
10 Vegna hans skortir ykkur því ekkert, hans sem er höfuð hvers konar stjórnar og valds.+
11 Vegna sambands ykkar við hann voruð þið umskorin, ekki með höndum manna heldur með því að hverfa frá syndugum löngunum líkamans+ en þannig eru þjónar Krists umskornir.+
12 Þið voruð jörðuð ásamt honum með sams konar skírn og hann.+ Þið voruð líka reist upp með honum+ vegna sambands ykkar við hann og vegna trúar ykkar á mátt Guðs sem reisti hann upp frá dauðum.+
13 Guð lífgaði ykkur með honum þó að þið væruð dauð vegna afbrota ykkar og væruð óumskorin.+ Hann fyrirgaf okkur fúslega öll afbrotin+
14 og þurrkaði út* skjalið+ sem talaði gegn okkur+ með ákvæðum sínum.+ Hann hefur fjarlægt það með því að negla það á kvalastaurinn.*+
15 Með kvalastaurnum* hefur hann afvopnað stjórnirnar og yfirvöldin og auglýst sigurinn yfir þeim+ með því að leiða þau sem fanga í sigurgöngu sinni.
16 Látið því engan dæma ykkur fyrir það sem þið borðið og drekkið+ eða hvort þið haldið hátíðir, fagnið nýju tungli+ eða haldið hvíldardaginn.+
17 Þetta er skuggi þess sem átti að koma+ en Kristur er veruleikinn.*+
18 Leyfið ekki þeim sem njóta þess að sýnast auðmjúkir og dýrka engla að hafa af ykkur verðlaunin.+ Þeir „halda sig við“* það sem þeir hafa séð og monta sig án þess að hafa tilefni til því að þeir hugsa eins og menn hugsa.
19 Þeir halda sig ekki fast við höfuðið,+ þann sem nærir allan líkamann og tengir hann saman með liðum og liðböndum í samstæða heild svo að hann vaxi með krafti Guðs.+
20 Fyrst þið dóuð með Kristi gagnvart hugmyndafræði heimsins,+ hvers vegna lifið þið þá enn eins og þið tilheyrðuð heiminum og haldið áfram að fylgja ákvæðum sem þessum:+
21 „Takið ekki, bragðið ekki á og snertið ekki“?
22 Allt þetta snýst um hluti sem eyðast við notkun og eru boð og kennisetningar manna.+
23 Þó að þessi ákvæði virðist viturleg er þetta sjálfvalin tilbeiðsla, uppgerðarauðmýkt og harðneskja við líkamann,+ en það kemur ekki að neinu gagni í baráttunni við langanir holdsins.

