Esrabók 1:1–11

  • Tilskipun Kýrusar konungs um endurreisn musterisins (1–4)

  • Útlagarnir búa sig undir að yfirgefa Babýlon (5–11)

1  Á fyrsta stjórnarári Kýrusar+ Persakonungs blés Jehóva honum í brjóst að gefa út yfirlýsingu í öllu ríki sínu. Jehóva gerði þetta til að orð sitt sem Jeremía hafði flutt+ myndi rætast. Yfirlýsingin, sem var einnig skrifleg,+ hljóðaði á þessa leið:  „Svo segir Kýrus Persakonungur: ‚Jehóva Guð himnanna hefur gefið mér öll ríki jarðar+ og hann hefur falið mér að reisa sér hús í Jerúsalem+ í Júda.  Hverjir á meðal ykkar tilheyra þjóð hans? Guð ykkar sé með ykkur. Þið skuluð fara upp til Jerúsalem í Júda og endurreisa hús Jehóva Guðs Ísraels. Hann er hinn sanni Guð sem átti sér hús í Jerúsalem.*  Hver sem er útlendingur+ í ríkinu, hvar sem hann er, skal fá hjálp frá nágrönnum sínum. Þeir skulu gefa honum silfur og gull, hluta af eigum sínum og búfé ásamt sjálfviljafórnum til húss hins sanna Guðs+ sem var í Jerúsalem.‘“  Ættarhöfðingjar Júda og Benjamíns auk prestanna og Levítanna, já, allir sem hinn sanni Guð hafði knúið til verka, bjuggu sig þá undir að fara og endurreisa hús Jehóva í Jerúsalem.  Allir nágrannar þeirra studdu þá* með því að gefa þeim gripi úr silfri og gulli, hluta af eigum sínum, búfé og önnur verðmæti auk allra sjálfviljafórnanna.  Kýrus konungur skilaði einnig áhöldunum sem Nebúkadnesar hafði tekið úr húsi Jehóva í Jerúsalem og sett í hús guðs síns.+  Kýrus Persakonungur fól Mítredat féhirði að sækja þau og telja og afhenda síðan Sesbasar*+ höfðingja Júda.  Talan var þessi: 30 körfulaga ker úr gulli, 1.000 körfulaga ker úr silfri, 29 önnur ker, 10  30 litlar gullskálar, 410 litlar silfurskálar og 1.000 önnur áhöld. 11  Gull- og silfuráhöldin voru alls 5.400 talsins. Sesbasar tók þau öll með sér þegar útlagarnir+ voru fluttir frá Babýlon til Jerúsalem.

Neðanmáls

Eða hugsanl. „sem er í Jerúsalem“.
Orðrétt „styrktu hendur þeirra“.
Hugsanlega sá sami og er nefndur Serúbabel í Esr 2:2; 3:8.