Síðari Samúelsbók 7:1–29

  • Davíð fær ekki að byggja musterið (1–7)

  • Sáttmáli við Davíð um ríki (8–17)

  • Þakkarbæn Davíðs (18–29)

7  Nú hafði konungur komið sér fyrir í húsi sínu*+ og Jehóva gefið honum frið fyrir öllum óvinum hans allt í kring.  Þá sagði konungur við Natan+ spámann: „Hér bý ég í húsi úr sedrusviði+ en örk hins sanna Guðs býr undir tjalddúkum.“+  Natan svaraði konungi: „Gerðu allt sem þér býr í hjarta því að Jehóva er með þér.“+  En sömu nótt kom orð Jehóva til Natans:  „Farðu og segðu við Davíð þjón minn: ‚Jehóva segir: „Hvers vegna ættir þú að reisa mér hús til að búa í?+  Frá því að ég leiddi Ísraelsmenn út úr Egyptalandi og allt til þessa hef ég ekki búið í húsi+ heldur hef ég ferðast* um og búið í tjaldi og búðum.+  Ég ferðaðist lengi með öllum Ísraelsmönnum og skipaði ættarhöfðingja Ísraels sem hirða þjóðar minnar. En spurði ég nokkurn tíma einhvern þeirra: ‚Hvers vegna hafið þið ekki reist mér hús úr sedrusviði?‘“‘  Segðu auk þess við Davíð þjón minn: ‚Jehóva hersveitanna segir: „Ég sótti þig í hagann þar sem þú gættir hjarðarinnar+ og gerði þig að leiðtoga yfir þjóð minni, Ísrael.+  Ég verð með þér hvert sem þú ferð+ og eyði öllum óvinum þínum frammi fyrir þér.+ Ég geri nafn þitt eins frægt og nöfn stórmenna jarðarinnar.+ 10  Ég vel stað handa þjóð minni, Ísrael, og gróðurset hana þar svo að hún geti búið þar óáreitt. Illir menn munu ekki kúga hana eins og áður,+ 11  eins og þeir gerðu allt frá því að ég skipaði dómara+ yfir þjóð mína, Ísrael. Og ég gef þér frið fyrir öllum óvinum þínum.+ Jehóva segir þér einnig að Jehóva ætli að stofna handa þér konungsætt.*+ 12  Þegar dagar þínir eru liðnir+ og þú hefur verið lagður til hvíldar hjá forfeðrum þínum geri ég afkomanda þinn, þinn eigin son, að konungi eftir þig og staðfesti konungdóm hans.+ 13  Hann mun reisa hús nafni mínu til heiðurs+ og ég mun staðfesta konunglegt hásæti hans að eilífu.+ 14  Ég verð faðir hans og hann verður sonur minn.+ Þegar hann brýtur af sér aga ég hann með vendi manna og refsa honum með höggum eins og menn* gera.+ 15  Ég tek ekki tryggan kærleika minn frá honum eins og ég tók hann frá Sál+ sem ég lét víkja fyrir þér. 16  Ætt þín og konungdómur mun vara að eilífu frammi fyrir þér og hásæti þitt standa stöðugt um ókomna tíð.“‘“+ 17  Natan flutti Davíð öll þessi orð og alla þessa sýn.+ 18  Þá gekk Davíð konungur inn, settist frammi fyrir Jehóva og sagði: „Hver er ég, alvaldur Drottinn Jehóva? Og hver er ætt mín úr því að þú hefur látið mig ná svona langt?+ 19  En ekki nóg með það, alvaldur Drottinn Jehóva, heldur hefurðu líka sagt að ætt þjóns þíns muni vara til fjarlægrar framtíðar. Þessi fyrirmæli* varða allt mannkynið, alvaldur Drottinn Jehóva. 20  Hvað meira getur Davíð þjónn þinn sagt við þig? Þú þekkir mig svo vel,+ alvaldur Drottinn Jehóva. 21  Þú hefur unnið öll þessi stórvirki vegna loforðs þíns og samkvæmt vilja þínum* og opinberað þau þjóni þínum.+ 22  Þess vegna ertu mikill,+ alvaldur Drottinn Jehóva. Enginn er eins og þú+ og enginn er Guð nema þú.+ Allt sem við höfum heyrt með eigin eyrum staðfestir það. 23  Og hvaða þjóð á jörðinni er eins og þjóð þín, Ísrael?+ Guð, þú frelsaðir hana* og gerðir hana að þjóð þinni.+ Þú gerðir nafn þitt frægt+ með því að vinna mikil og stórfengleg verk fyrir hana.+ Þú hraktir burt þjóðir og guði þeirra vegna fólks þíns sem þú leystir handa sjálfum þér úr ánauð í Egyptalandi. 24  Þú hefur gert Ísraelsmenn að þjóð þinni um alla eilífð+ og þú, Jehóva, ert orðinn Guð þeirra.+ 25  Jehóva Guð, haltu ævinlega loforðið sem þú hefur gefið þjóni þínum og ætt hans. Gerðu það sem þú hefur lofað.+ 26  Megi nafn þitt vera mikið að eilífu+ svo að fólk segi: ‚Jehóva hersveitanna er Guð Ísraels.‘ Og megi ætt Davíðs þjóns þíns standa stöðug frammi fyrir þér.+ 27  Jehóva hersveitanna, Guð Ísraels, þú hefur opinberað þjóni þínum þetta og sagt: ‚Ég ætla að stofna handa þér konungsætt.‘*+ Þess vegna hefur þjónn þinn kjark til að bera þessa bæn fram fyrir þig. 28  Alvaldur Drottinn Jehóva, þú ert hinn sanni Guð og orð þín eru sannleikur.+ Þú hefur lofað þjóni þínum öllum þessum gæðum. 29  Viltu því blessa ætt þjóns þíns og megi hún standa að eilífu frammi fyrir þér.+ Þú, alvaldur Drottinn Jehóva, hefur lofað þessu. Megi ætt þjóns þíns njóta blessunar þinnar að eilífu.“+

Neðanmáls

Eða „höll sinni“.
Orðrétt „gengið“.
Orðrétt „reisa þér hús“.
Eða hugsanl. „synir Adams“.
Eða „lög“.
Orðrétt „hjarta þínu“.
Eða „keyptir hana lausa“.
Orðrétt „reisa þér hús“.