Önnur Mósebók 17:1–16

  • Fólkið kvartar yfir vatnsleysi við Hóreb (1–4)

  • Vatn úr kletti (5–7)

  • Árás og ósigur Amalekíta (8–16)

17  Allur söfnuður Ísraelsmanna fór frá óbyggðum Sín+ og hélt áfram í áföngum eftir fyrirskipun Jehóva.+ Þeir tjölduðu í Refídím+ en þar var ekkert vatn handa fólkinu að drekka.  Fólkið fór því að kvarta við Móse+ og sagði: „Gefðu okkur vatn að drekka.“ Móse sagði þá: „Af hverju kvartið þið við mig? Af hverju reynið þið Jehóva?“+  En fólkið var mjög þyrst og hélt áfram að kvarta við Móse+ og sagði: „Hvers vegna hefurðu leitt okkur út úr Egyptalandi til að láta okkur, syni okkar og búfé deyja úr þorsta?“  Að lokum hrópaði Móse til Jehóva: „Hvað á ég að gera við þetta fólk? Það á bráðum eftir að grýta mig!“  Þá sagði Jehóva við Móse: „Taktu stafinn sem þú notaðir til að slá á Nílarfljótið+ og veldu nokkra af öldungum Ísraels. Farið fram fyrir fólkið og haldið af stað.  Ég mun standa frammi fyrir þér á klettinum við Hóreb. Þú átt að slá á klettinn og þá sprettur vatn úr honum þannig að fólkið geti fengið að drekka.“+ Móse gerði þetta fyrir augum öldunga Ísraels.  Hann kallaði staðinn Massa*+ og Meríba*+ vegna þess að Ísraelsmenn kvörtuðu og reyndu Jehóva+ með því að spyrja: „Er Jehóva á meðal okkar eða ekki?“  Nú komu Amalekítar+ og réðust á Ísraelsmenn í Refídím.+  Móse sagði við Jósúa:+ „Veldu menn og farðu með þeim til að berjast við Amalekíta. Á morgun ætla ég að standa efst uppi á hæðinni með staf hins sanna Guðs í hendinni.“ 10  Jósúa gerði eins og Móse hafði sagt honum+ og barðist við Amalekíta. En Móse, Aron og Húr+ fóru efst upp á hæðina. 11  Á meðan Móse hélt höndunum á lofti gekk Ísraelsmönnum betur, en um leið og hann lét hendurnar síga gekk Amalekítum betur. 12  Þegar Móse varð þreyttur í höndunum komu Aron og Húr með stein og Móse settist á hann. Síðan studdu þeir hendur hans, hvor sínum megin, svo að hann gat haldið þeim uppi allt þar til sólin settist. 13  Þannig sigraði Jósúa Amalekíta með sverði.+ 14  Jehóva sagði nú við Móse: „Skrifaðu þetta í bókina svo að munað verði eftir því: ‚Ég ætla að eyða Amalekítum af yfirborði jarðar og þeirra verður ekki minnst framar.‘+ Lestu þetta síðan fyrir Jósúa.“ 15  Móse reisti nú altari og nefndi það Jehóva Nissí.* 16  Hann sagði: „Þar sem Amalekítar rétta hönd sína gegn hásæti Jah+ mun Jehóva heyja stríð við þá kynslóð eftir kynslóð.“+

Neðanmáls

Sem þýðir ‚að reyna; prófraun‘.
Sem þýðir ‚rifrildi; kvörtun‘.
Sem þýðir ‚Jehóva er merkisstöng mín‘.