Síðari Konungabók 21:1–26
21 Manasse+ var 12 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í 55 ár í Jerúsalem.+ Móðir hans hét Hefsíba.
2 Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva og fylgdi viðbjóðslegum siðum þjóðanna+ sem Jehóva hafði hrakið burt undan Ísraelsmönnum.+
3 Hann endurreisti fórnarhæðirnar sem Hiskía faðir hans hafði eytt,+ reisti ölturu handa Baal og gerði helgistólpa*+ eins og Akab Ísraelskonungur hafði gert.+ Hann féll fram fyrir öllum her himinsins og tilbað hann.+
4 Hann reisti líka ölturu í húsi Jehóva+ þó að Jehóva hefði sagt: „Ég vil setja nafn mitt á Jerúsalem.“+
5 Hann reisti ölturu handa öllum her himinsins+ í báðum forgörðum húss Jehóva.+
6 Hann fórnaði syni sínum í eldi,* stundaði galdra, leitaði fyrirboða+ og réð andamiðla og spásagnarmenn.+ Hann gerði margt sem var illt í augum Jehóva og misbauð honum.
7 Helgistólpanum,*+ úthöggna líkneskinu sem hann hafði gert, kom hann fyrir í musterinu þó að Jehóva hefði sagt við Davíð og Salómon son hans: „Ég vil að nafn mitt sé alltaf í þessu húsi og í Jerúsalem sem ég hef valið úr öllum ættkvíslum Ísraels.+
8 Ég mun sjá til þess að Ísraelsmenn hrökklist aldrei aftur burt úr landinu sem ég gaf forfeðrum þeirra,+ svo framarlega sem þeir fylgja vandlega öllum boðorðum mínum,+ öllum lögunum sem Móse þjónn minn lagði fyrir þá.“
9 En þeir hlýddu ekki og Manasse leiddi þá á villigötur svo að þeir gerðust sekir um verri verk en þjóðirnar sem Jehóva hafði tortímt þegar Ísraelsmenn lögðu landið undir sig.+
10 Jehóva talaði fyrir milligöngu þjóna sinna, spámannanna,+ og sagði:
11 „Manasse Júdakonungur hefur framið allan þennan viðbjóð. Hann hefur unnið verri verk en allir Amorítarnir+ á undan honum+ og fengið Júda til að syndga með viðurstyggilegum skurðgoðum* sínum.
12 Þess vegna segir Jehóva Guð Ísraels: ‚Ég ætla að leiða slíka ógæfu yfir Jerúsalem+ og Júda að það mun óma í báðum eyrum allra sem heyra um það.+
13 Ég ætla að mæla Jerúsalem með sömu mælisnúru+ og Samaríu+ og nota sömu lóðlínu og ég notaði á ætt Akabs.+ Ég mun þurrka Jerúsalem eins og þegar skál er þurrkuð og henni hvolft.+
14 Ég mun yfirgefa þá sem eftir eru af fólki mínu*+ og gefa þá óvinum þeirra á vald. Allir óvinir þeirra munu ræna þá og taka þá að herfangi+
15 vegna þess að þeir gerðu það sem er illt í mínum augum og hafa misboðið mér hvað eftir annað, allt frá þeim degi sem forfeður þeirra komu út úr Egyptalandi.‘“+
16 Ekki nóg með að Manasse hafi fengið Júda til að syndga og gera það sem var illt í augum Jehóva heldur úthellti hann líka svo miklu saklausu blóði að það fyllti Jerúsalem frá einum enda til annars.+
17 Það sem er ósagt af sögu Manasse, öllu sem hann gerði og syndunum sem hann drýgði, er skráð í bókinni um sögu Júdakonunga.
18 Manasse var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum og jarðaður í garðinum við höll sína, í garði Ússa.+ Amón sonur hans varð konungur eftir hann.
19 Amón+ var 22 ára þegar hann varð konungur og hann ríkti í tvö ár í Jerúsalem.+ Móðir hans hét Mesúllemet og var dóttir Harúsar frá Jotba.
20 Hann gerði það sem var illt í augum Jehóva, alveg eins og Manasse faðir hans.+
21 Hann fetaði í fótspor föður síns í einu og öllu, þjónaði sömu viðurstyggilegu skurðgoðunum og faðir hans hafði þjónað og féll fram fyrir þeim.+
22 Hann yfirgaf Jehóva, Guð forfeðra sinna, og gekk ekki á vegi Jehóva.+
23 Dag einn gerðu þjónar Amóns konungs samsæri gegn honum og drápu hann í höll hans.
24 En fólkið í landinu drap alla þá sem höfðu gert samsæri gegn Amón konungi og gerði Jósía son hans að konungi í hans stað.+
25 Það sem er ósagt af sögu Amóns og því sem hann gerði er skráð í bókinni um sögu Júdakonunga.
26 Hann var jarðaður í gröf sinni í garði Ússa+ og Jósía+ sonur hans varð konungur eftir hann.
Neðanmáls
^ Sjá orðaskýringar.
^ Orðrétt „lét son sinn ganga gegnum eldinn“.
^ Sjá orðaskýringar.
^ Hebreska orðið lýsir fyrirlitningu. Hugsanlegt er að það sé skylt orði sem merkir ‚mykja‘.
^ Orðrétt „arfleifð minni“.