Síðara bréfið til Þessaloníkumanna 3:1–18

  • Haldið áfram að biðja (1–5)

  • Varað við óstýrilæti (6–15)

  • Kveðjuorð (16–18)

3  Að lokum, bræður og systur, haldið áfram að biðja fyrir okkur.+ Biðjið að orð Jehóva* breiðist hratt út+ og sé í heiðri haft eins og það er hjá ykkur  og að okkur sé bjargað frá vondum og spilltum mönnum.+ Það hafa ekki allir trú.+  En Drottinn er trúr og hann mun styrkja ykkur og vernda fyrir hinum vonda.  Og við sem þjónum Drottni treystum að þið fylgið fyrirmælum okkar núna og fylgið þeim áfram.  Megi Drottinn halda áfram að leiða hjörtu ykkar svo að þið elskið Guð+ og haldið út+ vegna Krists.  Nú gefum við ykkur þau fyrirmæli, bræður og systur, í nafni Drottins okkar Jesú Krists að hætta að umgangast hvern þann í söfnuðinum sem er óstýrilátur+ og fylgir ekki þeim leiðbeiningum sem við gáfum ykkur.*+  Þið vitið sjálf hvernig þið eigið að líkja eftir okkur.+ Við lifðum sómasamlega meðal ykkar  og borðuðum ekki hjá neinum án þess að borga fyrir okkur.+ Við unnum öllu heldur dag og nótt með erfiði og striti til að vera ekki fjárhagsleg byrði á neinu ykkar.+  Ekki svo að skilja að við ættum ekki rétt á því+ heldur vildum við vera ykkur fyrirmynd til eftirbreytni.+ 10  Við sögðum reyndar ítrekað meðan við vorum hjá ykkur: „Ef einhver vill ekki vinna á hann ekki heldur að fá að borða.“+ 11  En nú heyrum við að sumir á meðal ykkar séu óstýrilátir,+ vinni ekki neitt og blandi sér í það sem þeim kemur ekki við.+ 12  Slíkum mönnum skipum við og við brýnum fyrir þeim í nafni Drottins Jesú Krists að vinna kyrrlátlega og vinna sjálfir fyrir mat sínum.+ 13  En þið, bræður og systur, gefist ekki upp á að gera það sem er gott. 14  Ef einhver hlýðir ekki því sem við segjum í þessu bréfi skuluð þið merkja hann og hætta að umgangast hann+ svo að hann skammist sín. 15  Lítið þó ekki á hann sem óvin heldur áminnið hann+ áfram sem bróður. 16  Megi Drottinn friðarins veita ykkur stöðugan frið á allan hátt.+ Drottinn sé með ykkur öllum. 17  Ég, Páll, skrifa þessa kveðju með eigin hendi+ og þannig merki ég öll bréf mín. Þannig skrifa ég. 18  Einstök góðvild Drottins okkar Jesú Krists sé með ykkur öllum.

Neðanmáls

Eða hugsanl. „honum“.