Fyrsta Mósebók 11:1–32

  • Babelsturninn (1–4)

  • Jehóva ruglar tungumáli jarðarinnar (5–9)

  • Frá Sem til Abrams (10–32)

    • Afkomendur Tera (27)

    • Abram yfirgefur Úr (31)

11  Öll jörðin hafði eitt tungumál og notaði sömu orð.*  Nú bar svo við þegar mennirnir ferðuðust austur á bóginn að þeir fundu lágsléttu í Sínearlandi+ og settust þar að.  Þeir sögðu hver við annan: „Komum, búum til múrsteina og herðum þá í eldi.“ Þeir notuðu múrsteina í stað grjóts og bik sem steinlím.  Og þeir sögðu: „Komum, byggjum okkur borg og turn sem nær til himins. Þannig sköpum við okkur nafn svo að við tvístrumst ekki um alla jörðina.“+  Jehóva steig þá niður til að líta á borgina og turninn sem mennirnir voru að byggja.  Jehóva sagði: „Þeir eru ein þjóð og tala sama tungumál.+ Þetta er aðeins byrjunin. Nú geta þeir hvað sem þeir ætla sér.  Förum+ þangað niður og ruglum tungumáli þeirra til að þeir skilji ekki hver annan.“  Og Jehóva tvístraði þeim þaðan um alla jörðina+ og að lokum hættu þeir að byggja borgina.  Þess vegna var hún kölluð Babel*+ því að þar ruglaði Jehóva tungumáli allrar jarðarinnar og þaðan tvístraði Jehóva mönnunum um alla jörðina. 10  Þetta er saga* Sems:+ Sem var 100 ára þegar hann eignaðist Arpaksad,+ tveim árum eftir flóðið. 11  Eftir að Arpaksad fæddist lifði Sem í 500 ár og eignaðist syni og dætur.+ 12  Arpaksad var 35 ára þegar hann eignaðist Sela.+ 13  Eftir að Sela fæddist lifði Arpaksad í 403 ár og eignaðist syni og dætur. 14  Sela var 30 ára þegar hann eignaðist Eber.+ 15  Eftir að Eber fæddist lifði Sela í 403 ár og eignaðist syni og dætur. 16  Eber var 34 ára þegar hann eignaðist Peleg.+ 17  Eftir að Peleg fæddist lifði Eber í 430 ár og eignaðist syni og dætur. 18  Peleg var 30 ára þegar hann eignaðist Reú.+ 19  Eftir að Reú fæddist lifði Peleg í 209 ár og eignaðist syni og dætur. 20  Reú var 32 ára þegar hann eignaðist Serúg. 21  Eftir að Serúg fæddist lifði Reú í 207 ár og eignaðist syni og dætur. 22  Serúg var 30 ára þegar hann eignaðist Nahor. 23  Eftir að Nahor fæddist lifði Serúg í 200 ár og eignaðist syni og dætur. 24  Nahor var 29 ára þegar hann eignaðist Tera.+ 25  Eftir að Tera fæddist lifði Nahor í 119 ár og eignaðist syni og dætur. 26  Tera var orðinn 70 ára þegar hann eignaðist Abram,+ Nahor+ og Haran. 27  Þetta er saga Tera: Tera eignaðist Abram, Nahor og Haran. Haran eignaðist Lot.+ 28  Haran dó í fæðingarlandi sínu, í Úr,+ borg Kaldea.+ Þá var Tera faðir hans enn á lífi. 29  Abram og Nahor tóku sér konur. Kona Abrams hét Saraí+ en kona Nahors Milka.+ Hún var dóttir Harans, föður Milku og Ísku. 30  Saraí var barnlaus þar sem hún gat ekki eignast börn.+ 31  Tera tók nú Abram son sinn og Lot sonarson sinn,+ son Harans, og Saraí tengdadóttur sína, konu Abrams sonar síns, og þau lögðu af stað frá Úr, borg Kaldea, áleiðis til Kanaanslands.+ Þau komu til Haran+ og settust þar að. 32  Tera dó í Haran, 205 ára að aldri.

Neðanmáls

Eða „og sama orðaforða“.
Sem þýðir ‚ruglingur‘.
Eða „ættartala“.