Fyrsta bréf Jóhannesar 5:1–21

  • Trú á Jesú sigrar heiminn (1–12)

    • Það sem felst í því að elska Guð (3)

  • Treystum á mátt bænarinnar (13–17)

  • Gætið ykkar í illum heimi (18–21)

    • Allur heimurinn á valdi hins vonda (19)

5  Allir sem trúa að Jesús sé Kristur eru fæddir af Guði+ og allir sem elska föðurinn elska þann sem er fæddur af honum.  Við vitum að við elskum börn Guðs+ ef við elskum Guð og förum eftir boðorðum hans.  Að elska Guð felur í sér að halda boðorð hans+ og boðorð hans eru ekki þung+  því að allir* sem eru fæddir af Guði sigra heiminn.+ Og það er trú okkar sem hefur gert okkur kleift að sigra heiminn.+  Hver getur sigrað heiminn?+ Er það ekki sá sem trúir að Jesús sé sonur Guðs?+  Jesús Kristur er sá sem kom með vatni og blóði, ekki aðeins með vatninu+ heldur með vatninu og blóðinu.+ Andinn vitnar+ um það því að andinn er sannleikurinn.  Þeir eru sem sagt þrír sem vitna:  andinn,+ vatnið+ og blóðið,+ og þeim þrem ber saman.  Við tökum vitnisburð manna gildan en vitnisburður Guðs vegur þyngra. Og Guð hefur sjálfur vitnað um son sinn. 10  Sá sem trúir á son Guðs hefur vitnisburðinn innra með sér. Sá sem trúir ekki á Guð hefur gert hann að lygara+ því að hann trúir ekki þeim vitnisburði sem Guð hefur gefið um son sinn. 11  Vitnisburðurinn er sá að Guð gaf okkur eilíft líf+ og þetta líf er í syni hans.+ 12  Sá sem viðurkennir soninn hlýtur eilíft líf. Sá sem viðurkennir ekki son Guðs hlýtur ekki eilíft líf.+ 13  Ég skrifa ykkur þetta til að þið vitið að þið hljótið eilíft líf,+ þið sem trúið á nafn sonar Guðs.+ 14  Og við berum það traust til Guðs+ að hann heyri* okkur, hvað sem við biðjum um samkvæmt vilja hans.+ 15  Fyrst við vitum að hann heyrir okkur, sama hvað við biðjum um, vitum við líka að við fáum það sem við höfum beðið hann um.+ 16  Ef einhver sér bróður sinn drýgja synd sem leiðir ekki til dauða skal hann biðja og Guð veitir bróðurnum líf,+ það er að segja þeim sem drýgir ekki synd sem leiðir til dauða. En til er synd sem leiðir til dauða.+ Ég er ekki að segja honum að biðja fyrir þess konar synd. 17  Allt ranglæti er synd+ en til er synd sem leiðir ekki til dauða. 18  Við vitum að enginn sem er fæddur af Guði heldur áfram að syndga. Sonur Guðs* gætir hans og hinn vondi getur ekki gert honum neitt.*+ 19  Við vitum að við erum Guðs megin en allur heimurinn er á valdi hins vonda.+ 20  Við vitum að sonur Guðs kom+ og veitti okkur skilning* til að við gætum kynnst hinum sanna Guði. Við erum sameinuð honum vegna sonar hans, Jesú Krists.+ Þetta er hinn sanni Guð og uppspretta eilífs lífs.+ 21  Börnin mín, varið ykkur á skurðgoðum.+

Neðanmáls

Orðrétt „allt“.
Eða „við getum talað óhikað við hann þar sem hann heyrir“.
Eða „nær ekki taki á honum“.
Orðrétt „Sá sem er fæddur af Guði“.
Orðrétt „greind; vitsmuni“.